Fennill
Þú ert hér: Forsíða arrow Fróðleikur arrow Ferskar kryddjurtir arrow Fennill

12Fennill

 

e. fennel

 

 

Um aldaraðir hefur fennill verið þekktur sem lækninga- og kryddjurt. Fennill er notaður í ungbarnate til að losa börn við magaþembu. Jurtin er notuð gegn mildum magakrömpum og getur örvað matarlist. Fenill örvar einnig mjólkurmyndum í brjóstum mjólkandi kvenna.

 

Fennill getur orðið allt að 150 cm á hæð. Stöngull hans er sterkbyggður og holur og grænn. Blöðin fjaðurskipt með þráðlaga smáblöðum. Fennillinn hefur mildan anískeim og er öll jurtin nýtt. Fennill þrífst ekki í köldu loftslagi og því er mjög takmarkað magn af ferskum fennilblöðum eða sprota hér á landi.

 

Uppruni

Við Miðjarðarhaf.

 

Notkun

Fennill er mikið notaður í ítalskri og franskri matargerð. Fersk blöð hans eru notuð í salöt, kryddlegi, súpur og sósur. Fennil blöð þola illa suðu og því ætti að bæta þeim út í við lok eldunar. Fennill er mikið notaður við suðu á feitum fiski því hann vinnur gegn lýsisbragði.

 

Geymsla

Fenill geymist allt að viku í kæli ef hann er heill. Hann missir hratt geymsluþol þegar búið er að skera hann.