|
e. coriander Kóríander er eitt af fyrstu kryddum sem maðurinn tileinkaði sér í matargerð. Kóríander var vel þekktur meðal Forn-Egypta þaðan sem margir segja þann besta koma. Kóríander er lágvaxin jurt. Neðstu blöðin eru flipótt en önnur ein- til þrífjöðruð. Blómin eru hvít í litlum sveipum með aðeins 3-5 leggjum. Fræin eru hnöttótt, 2-5 mm eftir afbrigðum. Öll jurtin er nýtt, en bragðeiginleikar fræja og jurtarinnar eru gjörólík. Kóríanderfræ eru alltaf seld heil þar sem þau geymast ekki mulin. Uppruni Talið er að kóríander komi frá Vestur-Asíu og Norður-Afríku. Notkun Kóríanderfræ eru mikið notuð í indverskri matargerð, t.d. í karrí og kryddblöndur. Egypska kryddblandan dukkah inniheldur einnig kórianderfræ, en þessi blanda er notuð til að krydda kjöt- og grænmetisrétti, eða hrært saman við olíu og notuð sem ídífa fyrir brauð og grænmeti. Kóríanderblöð eru mikið notuð í arabískri matargerð þar sem þau eru borin fram með flestum réttum. Þau eru einnig mikið notuð í taílenskri matargerð, t.d. karríréttum og súpum þar sem þeim er stráð yfir við lok eldunar. Kóríanderblöð eru einnig notuð á Indlandi, Víetnam, Rómönsku-Ameríku og í Kína þar sem blöðin eru stundum kölluð kínversk steinselja þar sem þeim er stráð yfir nánast alla rétti. Geymsla Ferskur kóríander geymist frekar illa. Sökum þess hve auðvelt er að rækta kóríander á Íslandi tryggir það Íslendingum betri aðgang að þessarri frábæru kryddjurt í stað innfluttrar vöru.
|