e. sweet marjoram Í grískri goðafræði segir að meiran hafi í upphafi verið lyktarlaus jurt en fengið sinn sæta ilm við snertingu ástargyðjunnar Afrodítu þegar hún hóf ræktun þess á Idafjalli. Meiran táknaði trúnað og kærleika og jurtin hafði orð á sér fyrir að veita þeim hamingju og frið sem hana notuðu. Meiran er um 60 cm á hæð með grágrænum sporöskjulöguðum blöðum. Blómin eru hvít, lítil og vaxa þétt saman umvafin hlífðarblöðum. Meiran er í ættkvísl með óreganó sem kallast oft “villt meiran” en bragð hennar er talsvert mildara en af óreganó. Uppruni Við Miðjarðarhaf Notkun Meiran er algengara krydd á Norður-Ítalíu en í syðri hluta landsins þar sem óreganó er algengara. Það er notað á kjöt, fugla, grænmetisrétti og súpur. Bragð þess hentar einkar vel með gulrótum og agúrku. Meiran þolir líkt og margar aðrar kryddjurtir illa suðu og ætti því að nota undir lok eldunar. Meiran er einnig notað í mexíkóskri matargerð, þá jafnan í kryddvendi sem kallast “hierbas de olor” og samanstendur af lárviðarlaufi, timíani, meirani og stundum steinselju. Hann er nánast alltaf notaður í soð, súpur, pottrétti og súpur og það sjálfsagður að hann er oft ekki talinn með í uppskrifum. Geymsla Lauf meiran þorna fljótt, þau geymast í plastpoka í kæli í um viku. |