Óreganó
Þú ert hér: Forsíða arrow Fróðleikur arrow Ferskar kryddjurtir arrow Óreganó

04Oregano

 

e. oregano

 

Óreganó er notað í suður-ítalska eldhúsinu, þá einkum sem hluti af tómattengdum réttum. Það er klassískt krydd fyrir pizzur en ætti ávallt að notast í hófi.

 

Uppruni

Í löndum við Miðjarðarhaf.

 

Notkun

Notkun óreganó til matargerðar á sér í raun engin takmörk. Eins og fyrr segir á það vel við í ítalskri matargerð, þá einkum með tómat og mozzarella osti, í pasta og á pizzur. Þá er það mikið notað í paté í Frakklandi, í paellu á Spáni sem og í gríska matargerð svo eitthvað sé nefnt.

 

Geymsla

Laufin þorna fljótt og því er best að geyma þau í plastpoka í ísskáp. Við slíkar aðstæður geymist óreganóið í allt að viku. Þurrkað óreganó skal geyma í loftþéttum krukkum á skuggsælum stað.