
e. Rosemary Sígrænir, oddhvassir rósmarín runnar vaxa villtir um gjörvalla Ítalíu. Lauf rósmaríns eru hörð og bragð þeirra mjög biturt. Þess vegna eru þau ekki notuð fersk, heldur eingöngu við eldun. Ólíkt öðrum kryddjurtum heldur rósmarín bragði vel við eldun. Uppruni Við strendur Miðjarðarhafs. Notkun Það er mikið notað á Ítalíu, Grikklandi sem og í suðurhluta Frakklands. Það hentar einstaklega vel með steiktu eða grilluðu lambakjöti, kálfakjöti og kjúklingi. Geymsla Gott er að auka geymsluþol rósmaríns með því að geyma þau í plastpoka í ísskáp. Gæði rósmaríns rýrna mikið við þurrkun og ef ekki er völ á fersku rósmaríni er mælt með því að mylja þurrkaðs rósmarín til að auka virkni þess.
|