Salvía
Þú ert hér: Forsíða arrow Fróðleikur arrow Ferskar kryddjurtir arrow Salvía

05Salvia

 

e. Sage

 

Salvía var ein af mest notuðu lækningajurtum í Evrópu gegn margskonar kvillum. Grasalæknar í dag mæla með salvíutei við bólgum í tannholdi, munni og eymslum í hálsi. Þá er salvía einnig notuð til að draga úr svita. Ekki er mælt með því að þungaðar konur og börn noti salvíu.

 

Uppruni

Í löndum umhverfis Miðjarðarhaf.

 

Notkun

Salvía er mikið notuð í ítalskri og franskri matargerð þar sem hún er sögð henta með næstum öllu kjöti og grænmetisréttum. Hún hentar einkar vel í súpur, sósur og í fiskrétti. Á Bretlandi er hún meðal annars notuð í anda- og kalkúnafyllingar.

 

Geymsla

Fersk salvía geymist vel í plastumbúðum í ísskáp, allt að eina viku.