|
e. thyme Timían eru gríðarlega margar tegundir af varablómætt og þótt eflaust hafi þær flestar verið nýttar á einhvern máta er það aðallega ein tegund sem nýtt er í matargerð; garðablóðberg. Garðablóðberg er bragðmesta timíanið og sú tegund sem seld er þurrkuð sem timían. Á Íslandi vex ein tegund af villtu timíani, blóðberg en það er töluvert bragðminna en garðablóðberg. Uppruni Garðablóðberg kemur frá löndum við Miðjarðarhaf. Blóðberg er íslensk jurt. Notkun Garðablóðberg er mikilvægt krydd í suður-evrópskri matargerð. Það þolir vel suðu og því oft notað í sósur og pottrétti. Það er einnig notað mikið í tómatrétti, í olíur og edik. Íslenskt blóðberg er hvað þekktast notað á lambakjöt. |