Fróðleikur
Þú ert hér: Forsíða arrow Fróðleikur
Sannir sælkerar versla í Nóatúni

Fyrir mörgum er matur og matargerð hrein ástríða. Sönnum sælkera finnst ekki bara gaman að borða góðan mat heldur finnst honum líka gaman að búa til góðan mat. Hápunktur matargerðarinnar hjá sælkeranum er gleðin sem skín úr augum þeirra sem fá að njóta matarins með honum og viðbrögðin sem hann fær við matargerðinni. Hjá sælkeranum snýst þetta ekki bara um að njóta bragðsins heldur um nautnina sem fylgir því að kitla bragðlaukana. Sælkeranum finnst ekkert jafn spennandi og að finna ilminn af ferskum kryddjurtum, meðhöndla safaríkt hráefni og kaupa spennandi vörur sem hann getur prófað sig áfram með.

Sannir sælkerar lesa matreiðslubækur til þess að fá hugmyndir að sniðugum samsetningum. Þeir eru stöðugt leitandi og þyrstir í meiri þekkingu á mat og matargerð því þekkingin og vitneskjan fullkomna nautnina. Ef þú ert sælkeri þá átt þú svo sannarlega erindi í Nóatún. Verslanir Nóatúns eru sniðnar að þörfum sælkera því þar er gífurlegt úrval af ferskum vörum auk þess sem framandi og spennandi vörum er gert hátt undir höfði. Í Nóatúni færðu allt sem þarf til þess að elda fullkomna sælkeramáltíð.