|
Flestir Ítalir tala um Mólíse og Abrútsi í sömu setningunni. Þetta litla og hrjóstuga svæði sem snýr að Adríahafinu fékk ekki sjálfstæði frá Abrútsi fyrr en 1963. Mólíse er einstakt að því leyti að það hefur ekki fylgt þeim breytingum sem orðið hafa annars staðar á Ítalíu. Brauð, vín og olía er aðaluppistaðan í matargerð í Mólíse og framleiðsla á ólífuolíu er aðaliðnaður héraðsins. Rauður peperoncini er mikið notaður eins og í flestum öðrum héruðum Suður-Ítalíu. Mjög lítið kjöt er borðað í Mólíse. Þegar það er gert þá er það einkum lamba- eða svínakjöt. Abrútsi er hrífandi svæði. Há snævi þakin fjöll og fallegur blár sjór með sandströndum. Vegna þessa heita og kalda loftslags eru miklar andstæður í matargerð strand- og fjallahéraða. Þó að bæði beri suðrænan blæ eru réttir strandsvæðanna einkum úr sjávarfangi en fjallahéraða úr svínakjöti og lambakjöti. “Porchetta” (unggrísir) er sérréttur fjallasvæðanna í Abrútsi svo og hráskinkan sem nefnd er “Aquila”. Abrútsi var einu sinni snauðara svæði en nú státar það af vaxandi hagsæld. Landbúnaður er mikilvæg atvinnugrein og aðaluppskeran eru vínþrúgur, ólífur, hveiti, sykurrófur, saffron og tóbak. Búfénaður er einkum svín og kindur. Á strandsvæðum stuðlar milt loftslag og frjósamur jarðvegur að fjölbreyttri framleiðslu landbúnaðarvara, m.a. kartöflum, hveiti og maís, ólífum, vínþrúgum, óregano og saffroni. Margir álíta að saffron frá Abrútsi sem ræktað er nálægt höfuðborg héraðsins, Aquila, sé það besta í heiminum. Diavolicchio (rauður chili-pipar) er mikið notaður og er talinn heilsukrydd sem örugglega geti læknað flest sem amar að þér. Enginn Abrútsi-réttur er fullkominn án þess. Pasta er algengt hér eins og í flestum ítölskum réttum. Framlag Abrútsi til pastagerðar er “chitarra”, það er gítarlaga áhald úr viði og vír sem býr til þykkt og teningslaga pasta. Sumt af besta pasta á Ítalíu er búið til í Abrútsi vegna hins góða hveitis sem þar er ræktað og hreina vatnsins þar. Sauðaosturinn er annar uppáhaldsréttur í héraðinu, eins og vatnabufala-mjólkurostur kryddaður með rauðum chili-pipar sem þekktur er undir nafninu caciocavallo. Uppskrift frá Mólíse og Abrútsi: Kastaníuhnetu-, romm- og súkkulaðikökur 200 g hveiti smáskvetta af hvítvíni 1 msk vatn 200 g ristaðar kastaníuhnetur 100 ml romm 100 g suðusúkkulaði 2 msk hunang 1 msk möndlur 30 g súkkat 20 g sykur lítið eitt af kanil 2 egg 2 msk ólífuolía vanilludropar Leiðbeiningar: 1. Blandið saman hveiti, eggjarauðum, ólífuolíu og 1 msk af vatni – hnoðið saman í mjúkt deig (ef það er of þurrt má bæta við smáskvettu af hvítvíni eða vatni með sítrónusafa út í. 2. Leyfið deiginu að standa í ca 10 mínútur. Fletjið svo út frekar þunnt. Skerið út kringlóttar kökur ca 7 cm í þvermáli. 3. Blandið saman söxuðum kastaníuhnetum, 1 msk hunangi, rifnu súkkulaði, rommi, kanil, söxuðum möndlum og súkkati. 4. Setjið rúmlega matskeið af þessari fyllingu á annan helming deighringjanna og leggið saman til að mynda hálfmána – þrýstið vel saman svo þeir opnist ekki. 5. Djúpsteikið í nokkrar mínútur, þerrið svo á pappír og stráið yfir kanilsykri.
|