|
Aragon er harðneskjulegt hérað, umkringt fjallgörðum. Þetta er tiltölulega stór sýsla vestur af Katalóníu og liggur að landamærum Frakklands. Höfuðborgin heitir Zaragoza og voru íbúar hennar meðal fyrstu borgarbúa á Spáni, sem meðtóku kristni. Navarra varð ekki opinberlega hluti af Spænska konungsríkinu fyrr en 1833 en áður var Navarra eitt konungsríki sem teygði anga sína alla leið frá Galisíu til Barcelona. Höfuðborg þessa héraðs heitir Pamploma og er þekkt fyrir sitt árlega nautahlaup. Í þessum héruðum er eldamennskan einföld. Grillaðar kótilettur er t.d. afar vinsæll réttur með kartöflum og fullt af allioli. Þessi tvö fjallahéruð eru þó þekkt fyrir alveg ógurlega gott lambakjöt um gjörvallan Spán. Það gera víst fjöllin. Þarna býr fólk í fallegum dölum með fjallasali allt í kringum sig. Í fjöllunum er líka nóg af hráefni að finna til matargerðar. Góðan ferskvatnsfisk, kanínur, snigla og ferskar kryddjurtir svo fleira sé nefnt. Uppskrift: Menestre de Verduras – spænsk grænmetiskássa Fyrir 4 1 tsk ólífuolía 2 laukar skornir 1 hvítlaukur kraminn 1 skallotlaukur skorinn 4 tómatar sneiddir 2 eggaldin skorin 3 kúrbítar skornir 2 litlar sætar kartöflur skornar í sneiðar ¼ tsk salt ¼ tsk pipar 1 dós canellini baunir 2 tsk ferskur basill saxaður Leiðbeiningar 1. Hitið olíuna í súpu potti við miðlungs hita. Bætið lauknum út í og eldið þar til hann verður mjúkur. Bætið hvítlauknum og skallotlauknum og eldið í 1 mínútu til viðbótar. 2. Hrærið restinni af grænmetinu út í og kryddið með salti og pipar. Setjið lokið á pottinn og eldið áfram við miðlungshita í 30-40 mínútur. Hrærið í af og til og bætið örlitlu af vatni ef stappan virðist þurr. 3. Bætið canellini baununum út í og eldið í 10-15 mínútur til viðbótar. 4. Takið pottinn af eldavélinni og bætið basil út í. Hrærið í og látið standa í 10 mínútur áður en borið er á borð.
|