Þó að Bretónar séu umluktir á þrjá vegu af vatni og aðskildir frá öðrum hlutum Frakklands af tungumáli og sínum keltnesku hefðum, þá eru þeir stoltir af sérkennum sínum og leggja mikla áherslu á að viðhalda tungumálinu og hefðunum lifandi. Matargerð Bretóna er einföld og styðst lítið við sósugerð en þeim mun meira er notað af sjávarfangi. Strandhéruðin á Bretagne-skaganum, nefnd Amor, land sjávarins á bretónsku, eru að réttu lagi fræg fyrir fisk, sjávarfang eins og ostrur (Belon og creuses) og humar. Bretónskur humar og kræklingur er venjulega borinn fram sem hluti af sjávarréttabakka eða í hefðbundinni fiskistöppu eins og “Cotriade” sem gerð er úr sjávarál og “pot au feu d’homard” (humar, rækja, hörpuskelfiskur, kræklingur og ostrur í stöppu). Innlandshluti Bretaníu – Argoat, land skógarins, er þekkt um allt Frakkland fyrir úrvalsgrænmeti, sérstaklega ætiþistla, blómkál og lauk. Unnar kjötvörur eru líka mikilvægar, þ.á m. andouille-pylsa, svínakæfa, pylsur og vinstur. Bókhveitispönnukökur og aðrar pönnukökur eru sennilega frægustu bretónsku sælkeraréttirnir. Þetta eru í raun og veru bretónskir sérréttir sem urðu til í fátækt héraðsins um lengri tíma. Bókhveiti var auðvelt að rækta í lélegum jarðvegi og Bretónar gerðu sína pönnuköku sem staðgengil fyrir dýrara heitibrauð og er hún nú borin fram um allt Frakkland. Bretagne er eitt af fáum svæðum í Frakklandi þar sem ekki er búinn til ostur né hefð fyrir að borða hann. Þeir kalla ost “beurre pourri”, sem þýðir “skemmt eða þrátt smjör”. Í staðinn fyrir ost breyta Bretónar mjólkinni sinni í smjör, venjulega saltað með salti sem er búið til á svæðinu. Smjörið er notað í bragðmiklar smjörkökur og kex. Annað sem er einstakt fyrir Bretagne er að það er engin víngerð á svæðinu. Eplacider er aðaldrykkurinn og passar sérstaklega vel með sjávarfangi héraðsins. Uppskrift frá Bretaníu: Cotriade - Fiskisúpa 2 kg mismunandi fisktegundir í 10 cm bitum (hausar fjarlægðir) 800 g kartöflur – flysjaðar og skornar í teninga 3 stórir laukar – skornir í teninga 150 g smjör salt og pipar rauðvínsedik Leiðbeiningar: 1. Steikið lauk í smjörinu í nokkrar mínútur, bætið við kartöflum og einum lítra af köldu vatni. 2. Látið suðu koma upp og sjóðið í 15 mínútur, bætið svo við fiskbitum og leyfið suðu að koma upp aftur. 3. Bætið salti, pipar og rauðvínsediki saman við. Þegar fiskurinn er soðinn er rétturinn borinn fram með steinselju og ristuðu brauði.
|