Champagne
ImageAðalframlag Champagne er augljóst, en þar sem héraðið liggur að landamærum Belgíu er þar einnig að finna ljúffenga rétti undir flæmskum áhrifum. Í höfuðborg héraðsins, Lille, er mesta bjórframleiðsla í Frakklandi. Svalt loftslag þessa héraðs gerir það hentugt til að rækta kartöflur, hvítkál, rófur, vætukarsa, kaffifífilssalat og púrrulauk.


Það má segja að matarmennig hér einkennist af seðjandi og heimilislegum mat. Réttir eins og “Flamiche”, sem er einföld baka úr púrrulauk, rjóma og eggjum, og “Endive flamande”, sem er heitt skinku- og kaffifífilssalat með hvítri sósu, finnast á öllum matseðlum. “Carbonnade de Boeuf” er enn einn sígildur réttur í héraðinu, en þá er nautakjöt brúnað hægt í lauk og bjór. Kássa nefnd “chaudrée” (þar af kemur enska orðið “chowder”) er gerð úr fiski sem veiðist í héraðinu.


Mikið er um sætindi hér og á meðal þekktustu rétta eru “gaufres” (vöfflur sem borðaðar eru með sykri og rjóma) og “Biscuits de Reims” sætar og ljúffengar pappírsþunnar makkarónukökur.


Flestir ostar héraðsins eru mildir og mjúkir. “Barberey” og “Cendré des Riceys” eru mjúkir ostar búnir til úr undanrennu og eru þaktir með ösku. “Chaorce” er mjúkur með dálitlu ávaxtabragði og dúnmjúkum hvítum hjúp. Einn lyktarsterkur ostur er “Langres” sem líka er mjög bragðsterkur.


Uppskrift frá Champagne:


Biscuits de Reims Möndlu- og appelsínu kex


4 stór egg

1 msk vanilludropar

½ tsk rauður matarlitur

¼ tsk möndludropar

¼ tsk appelsínudropar

2 bollar sykur

1 bolli malaðar möndlur

1 msk kakóduft

2 bollar hvítt hveiti


Leiðbeiningar:


1. Stillið ofninn á 220°C.


2. Stífþeytið eggjahvíturnar í stórri skál, hrærið svo saman við eggjarauðum, matarlit, möndludropum og appelsínudropum.


3. Bætið sykrinum við smátt og smátt og hrærið vel á meðan, bætið svo út í möluðum möndlum og kakódufti, blandið vel saman. Nú má bæta við sigtuðu hveiti smám saman.


4. Smyrjið vel tvö 20 cm ferköntuð eða kringlótt form og setjið jafnt lag af deigi í hvort.


5. Bakist í 20–25 mín – á ekki að taka lit að ofan. Kælið svo og skerið í ferkantaða bita.


6. Lækkið ofnhitann niður í 100°C og setjið formin aftur inn í ofn svo að kexið verði stökkt.