EMILÍA RÓMANJA - Emilia Romagna
Þú ert hér: Forsíða arrow Fróðleikur arrow Heimsins eldhús arrow Ítalía arrow EMILÍA RÓMANJA
Heimili hins heimagerða pasta, hráskinku og parmigiano-ostsins.

Emilía-Rómanja er talið vera sérstakt hérað út frá stjórnmálalegu og stjórnarfarslegu sjónarmiði, en í raun og veru eru þetta tvö ólík svæði sem hvort hefur sín einkenni, sögu og hefðir. Innan Emilía eru svæðin Bologna, Modena, Reggio Emilia og Parma, en Rómanja liggur meðfram Adríahafinu og þar eru Ferrara, Ravenna og Forli. Emilíubúar eru venjulega hamingjusamir og bjartsýnir, Rómanjabúar eru skapmiklir og ákveðnir. Þessi mismunur á lundarfari kemur fram í matargerð þeirra. Matreiðslumaður í Emilíu myndi aldrei yfirgnæfa mat með sterku kryddi en Rómanjabúum hættir til þess.

Emilía-Romanja er heimaland heimagerðs pasta. Í Bologna eru tagliatelle, lasagne og tortellini uppáhaldsréttirnir. Í Emilía er pastagerð listgrein og unun að horfa á framleiðslu þess. Svínakjöt er hefðbundinn réttur í Emilía-Rómanja héraði. “Prosciutto”, frægasta svínakjötsafurð Ítalíu er búin til í Parma. “Coppa” og “Pancetta” eru sérréttir í Piacenza í norðri. Í Rómanja er hefð fyrir fiskréttum og “brodetto” er frægasta fiskisúpan. “Parmigiano Reggiano”, hinn ókrýndi konungur ostanna, er búinn til hér. Annað frægt framlag Emilía-Rómanja héraðsins til matargerðar er “Balsamic edik” sem hefur verið búið til í Modena í árhundruð.

“Culatello” er einn af sérréttum svæðisins sem er mjög sérstakur og er af mörgum talinn betri en “Prosciutto”. Modenabúar hafa dálæti á “Zampone” (stórum löppum) sem er salamipylsa troðið inn í svínafót og soðin yfir mjög lágum hita. Þetta er borið fram með kartöflustöppu eða svörtum baunum. Hefð er fyrir að borða þetta á nýársdag.

 

Uppskrift frá Emilía-Rómanja:


Fiskisúpa

 

2 kg mismunandi fisktegundir

2–4 hvítlauksrif

1 laukur

2 msk tómatpúrra

100 ml ólífuolía

200 ml vatn

salt og pipar

söxuð steinselja

1 msk rauðvínsedik eða 1 glas af hvítvíni

 

Leiðbeiningar:

 

1. Byrjið á að hreinsa fiskinn og skera hann í stóra bita.

 

2. Steikið lauk og hvítlauk í olíunni á lágum hita þar til laukurinn er orðin gullinn, bætið ediki eða víni út í, leyfið þessu að krauma í nokkrar mínútur eða þar til vökvinn hefur að mestu gufað upp. Bætið tómatpúrru og vatni saman við.

 

3. Komið upp suðu í pottinum og bætið fiskinum út í, sjóðið í fimm mínútur og lækkið svo hitann og sjóðið í 10 mínútur í viðbót með lokið á.

 

4. Raðið ristuðum brauðsneiðum í botn á skál eða öðru íláti, setjið þar næst fiskinn og hellið soði yfir. Stráið með steinselju og berið fram.