Egyptaland er í Norður-Afríku og myndar einu landbrúna milli Afríku og Asíu. Egyptaland á landamæri að Lýbíu, Súdan og Ísrael og strandlína þess telur alls 1273 km að Miðjarðarhafinu og Rauðahafi. Stórfljótið Níl skiptir landinu í tvo hluta eftir hásléttunni sem að mestu er eyðimörk. Loftslagið er þurrt og heitt og vetur eru mildir. Egypsk matargerð er litrík. Staðbundið hráefni er hjartað í egypskri matargerð undir áhrifum grískra, tyrkneskra, líbanskra, palestínskra og sýrlenskra matarvenja, aðlagað að egypskum efnahag, siðum og smekk. Réttirnir eru einfaldir, gerðir úr ferskum ávöxtum og grænmeti, kryddaðir með ferskum kryddum. Maturinn í suðurhluta landsins er bragðmeiri í anda Norður-Afríska eldhússins en í norðurhlutanum án þess þó að vera neitt sérstaklega bragðsterkur. Algengustu krydd egypskrar matargerðar er kanill, kóriander, dill, timjan, hvítlaukur og sesamfræ. Helstu tegundir grænmetis og ávaxta eru blaðlaukur, laukur, hvítkál, ferskar fíkjur, ferskar eða þurrkaðar rúsínur, kjúklingabaunir, lentilbaunir og granatepli. Af kjötafurðum er dúfna, kjúklinga, kindakjöts, kameldýra og vísunda mest neytt. En fyrir flesta Egypta er kjöt munaðarvara og þess er helst neytt í litlum skömmtum. Dúfur eru ræktaðar um gjörvallt landið og eru víst herramannsmatur fylltar með kryddhrísgrjónum og grillaðar. Helst ber að varast ef þær eru bornar fram með höfðinu troðnu inn í fyllinguna! Svínakjöt er óhreint í augum múslima en er fáanlegt á veitingastöðum ef eftir því er leitað. Fiskur er einnig algengur á borðum Egypta, þá einkum koli, rækjur, smokkfiskur, hörpudiskur og áll. Brauð gegnir lykilhlutverki í egypskri matargerð en talið er að Egyptar hafi fyrir um 5000 árum uppgötvað lyftiduftið sem enn gegnir lykilhlutverki í bakstri í dag. Þá er einnig talið að Egyptar hafi fundið upp pasta. Baunir, einkum Fava baunir, eru mikilvægur hluti matargerðarinnar. Almennt má segja að Egyptar nærist þrisvar sinnum á dag. Hefðbundinn morgunmatur samanstendur ýmist af baunakássu úr Fava baunum eða brauði og osti eða eggjum. Síðdegismáltíð fjölskyldunnar á sér stað um klukkan þrjú og er venjulega aðalmáltíð dagsins. Máltíðin samanstendur af kjöti eða fiski, grænmeti, hrísgrjónum eða pasta, salati og súrum agúrkum ásamt brauði. Ferskir ávextir eru algengasti eftirrétturinn. Að lokinni síðdegismáltíð tekur við siesta líkt og á Spáni. Kvöldmatur er mun léttari og venjulega hafður milli klukkan átta og tíu að kvöldi. Jógúrt, ferskir ávextir, ostur og afgangar frá síðdegismáltíðinni er algengasta fæðan. Tyrkneskt kaffi eða te er oft drukkið með máltíðinum og allir réttir eru lagðir á borð samtímis fyrir matargesti sem bjarga sér sjálfir. Uppskriftir frá Egyptalandi: Kryddaður Hummus Aðalréttur / réttur fyrir 2 ½ bolli fersk steinselja ½ bolli fersk basilíka 2 msk parmesan ostur, rifinn 1 msk furuhnetur 2 msk sítrónusafi 2 msk Tahini ½ tsk salt ¼ tsk malaður svartur pipar 400 gr. canellini baunir 2 hvítlauksgeirar Leiðbeiningar: -
Setjið allt hráefnið í matvinnsluvél og maukið vel saman. Maukið þar til verður mjúkt, hreinsið úr jöðrum skálarinnar af og til. Sítrónumarinerað lamb Aðalréttur fyrir 2 450 gr. lambakjöt, skorið í bita 225 gr. laukur, fínt saxaður 50 gr. hvítlaukur 50 gr. möndlur, afhýddar 50 gr. mulinn kóriander ½ tsk sítrónubörkur Salt 40 ml. Sólblómaolía 1 tsk. Garam masala krydd Sítrónusafi eftir smekk Leiðbeiningar: -
Maukið lauk, hvítlauk, möndlur, mulinn kóriander í matvinnsluvél. Bætið saman við olíu, sítrónusafa og salti. -
Leggið lambakjötið í þessa marineringu og látið marinerast í kæli í 1 klst. -
Að marineringu lokinni, setjið lambið ásamt marineringunni á djúpa pönnu. Eldið þar til allur vökvi hefur gufað upp og olían byrjar að skiljast frá. Þetta ætti að taka 5 mínútur. -
Bætið við örlitlu vatni sem þarf til að elda lambið. Setjið lok á og látði malla þar til lambið er tilbúið. Bætið við Garam masala og sítrónusafa. Bætið við örlitlu vatni í sósuna og látið sjóða. -
Bætið nokkrum sneiðum af sítrónu út í, setið lokið á strax og takið af hitanum. -
Berist fram skreytt með hnetum, sítrónusneiðum og limesneiðum ofan á basmati hrísgrjónabeði. Agúrku- og myntusósa meðlæti 480 gr. hrein jógúrt 2 hvítlauksgeirar, marðir 2 msk vatn Salt eftir smekk 1 msk fersk mynta, söxuð 1 agúrka í sneiðum Leiðbeiningar: -
Setjið jógúrtið í skál, bætið hvítlauknum, salti og vatni saman við og blandið vel saman. -
Bætið út í myntunni og agúrkunni og blandið saman. Kælið þar til borið er fram. -
Þessi sósa hentar vel með grilluðu kjöti eða sterkum réttum. Sítrónukjúklingur með fíkjum Aðalréttur fyrir 4 8 stór kjúklingalæri 2 sítrónur 50 gr. púðusykur 60 ml hvítvínsedik 60 ml vatn 675 gr. þurrkaðar fíkjur Salt 2 tsk ferskt timjan 1 msk fersk steinselja, söxuð Leiðbeiningar: -
Forhitið ofninn í 200°C. Kreistið safa úr einni sítrónu í litla skál, bætið við púðusykrinum, vínedikinu og vatni og blandið vel saman. Setjið til hliðar. -
Skerið restina af sítrónunni og raðið í ofnpott með fíkjunum. Setjið kjúklingalærin ofan á í eitt lag. Dreypið yfir vínediksblöndunni og kryddið með salti og timjan. -
Eldið í ofninum í 50 mínútur. Snúið fíkjunum ef þær fara verða of brúnar. -
Fjarlægið kjúklinginn, fíkjurnar og sítrónusneiðarnar með skeið. Leggið á diska. -
Skimið frá alla fitu frá vökvanum, hellið vökvanum yfir kjúklinginn og kryddið með steinselju. Berið fram strax.
|