|
Á ítölsku þýðir piedi (pie) fótur og montania (monte) þýðir fjall og af því er nafnið Piemonte dregið. Nafnið er mjög við hæfi fyrir þetta landlukta hérað við rætur Alpafjalla. Héraðið á landamæri að Frakklandi í norðvesturhluta Ítalíu. Piemont er fjöllótt land, með ávalar hæðir, auðugar borgir, góða bændur og myndrænar vínekrur. Frönsk stjórn hefur skilið eftir sig mikil og óumdeild merki á matarhefðum héraðsins. Með sínum lágu, flötu ökrum er Fjallaland eitt af mikilvægustu hrísgrjónaræktarsvæðum á Ítalíu og í þessu héraði má fullyrða að risotto sé tekið fram fyrir pasta. Mjólkurafurðir er annað mikilvægt hráefni í matargerðina, m.a. í robiola og ricotta. Hinar viðkvæmu, hvítu trufflur sem Alba er fræg fyrir eru þefaðar uppi af sérþjálfuðum hundum og eru sneiddar niður í alls konar rétti. Kjöt- og villibráðarréttir eru líka mikilvægir hér og eru oft í soðnir í bragðmiklum rauðvínum. Antipasto er einkenni matargerðar í Fjallalandi. Allt að 20 afbrigði af antipasto geta verið framreidd í veitingahúsum í borginni. Frægasti antipasto-réttur svæðisins, “Bagna Cauda”, (heit ídýfa búin til úr ansjósum, hvítlauk og ólífuolíu og borin fram með niðursneiddu grænmeti), sameinar bæði ástríðu Fjallalandsbúa fyrir hvítlauk og ást þeirra á grænmeti. Þó að fá svæði Ítalíu séu þekkt fyrir sætindi er Piemonte miðstöð lítilla sælgætisframleiðenda og búðingar, smákökur og kökur gegna miklu hlutverki í matargerð hér, með “crema cotta” og “zabaglione” meðal frægra rétta þessa héraðs. Uppskrift frá Fjallalandi: Ansjósu- og hvítlauksídýfa 150–200 ml ólífuolía 8 hvítlauksrif – fínt söxuð 6 ansjósuflök í salti chili-flögur salt og pipar söxuð steinselja ½ sítróna Leiðbeiningar: 1. Hitið olíuna í potti á lágum hita. 2. Bætið út í hvítlauk og ansjósum og leyfið þessu að malla í nokkrar mínútur, það er gott að merja ansjósurnar með gaffli, þær leysast auðveldlega í sundur. 3. Þegar hvítlaukurinn er orðinn ljósbrúnn má bæta chili-flögunum í og taka pottinn af hellunni. 4. Bragðbætið með salti, pipar og sítrónusafa eftir smekk, það má bæta við meiri olíu ef þetta er of sterkt. Berið fram heitt (gott að bera fram í fondue-potti) og hafið gott brauð og hrátt grænmeti skorið í strimla með til að dýfa í.
|