Galisía
Þú ert hér: Forsíða arrow Fróðleikur arrow Heimsins eldhús arrow Spánn arrow Galisía
Galisía er á norðvesturhorni Íberíuskagans. Veðurfar er vætusamt og héraðið ólíkt flestum öðrum héruðum Spánar. Segja má að Galisía eigi meira sameiginlegt með Skotlandi heldur en sólríkum miðjarðarhafsströndum.

Galisíubúar eru miklir fiskimenn og er úrvalið af sjávarréttum stórkostlegt. Þeir eru líka frægir fyrir skelfiskrétti sína en skelin er heilagt tákn á meðal pílagríma sem flykkjast árlega til Santiago de Compostella, eftir að hafa farið pílagrímsför á tveim jafnfljótum alla leið frá Bilbao í Baskalandi eða jafnvel lengra. För þeirra endar svo í kirkju einni sem geymir skrín hins heilaga Jakobs sem pílagrímsförin er kennd við.

Uppskriftir frá Galisíu:

 

Empanadas kaka
Fyrir 4-6


450 gr hveiti

2 tsk þurrger

Salt

3 dl ylvolg mjólk

2 eggjarauður

1 egg hrært

Hnífsoddur af anís


Fylling:

2 msk ólífuolía

2 laukar saxaðir

225 gr bufftómatar

400 gr túnfiskur í olíu síaður

1 stór rauð paprika

6 svartar ólífur steinhreinsaðar og skornar í fernt

4 saffranþræðir


Leiðbeiningar:


1. Sigtið hveitið og klípu af salti í skál. Hrærið gerinu út í. Hrærið mjólkinni í eggjarauðurnar, bætið við anís, hellið þessu svo hægt út í mjölið og hrærið stöðugt. Hrærið í 5-10 mínútur þar til deigið losnar auðveldlega frá skálinni.


2. Hvolfið deiginu á lítillega mjölborið borð og hnoðið þar til það verður þjált og teygjanlegt. Mótið deigið í 2 jafnstórar kúlur, setjið þær í smurða skál, byrgið og látið standa á hlýjum stað þar til umfangið tvölfaldast eftir ca 1 klst.


3. Nú er komið að fyllingunni. Hitið olíuna á steikarpönnu, látið laukinn í og steikið og hrærið öðru hvoru í u.þ.b. 4 mínútur þar til hann mýkist. Flysjið, fræhreinsið og saxið tómatana, hrærið þeim út í pönnuna og látið krauma þar til þykknar. Flísið túnfiskinn. Flysjið og saxið paprikuna og hrærið henni út í pönnuna ásamt túnfiskinum og ólífunum. Myljið saffranþræðina og leysið upp í 2 msk af heitu vatni. Látið saffranið í pönnuna. Látið krauma þar til vel samlagast, setjið þá til hliðar.


4. Forhitið ofninn í 200 gráður. Smyjið ofnplötu, fletjið deigkúlurnar hvora í sínu lagi á mjölbornu borði í þunnan ferning. Færið annan deigferninginn yfir á bökunarplötu. Smyrjið fyllingunni yfir deigið en skiljið eftir auða rönd meðfram öllum hliðum. Leggið hinn deigferninginn yfir og þrýstið jöðrunum saman. Gljáið með hrærðu eggi og skerið rauf í miðjuna. Bakið í 15-20 mínútur þar til gyllist. Berið kökuna fram heita skorna í ferninga.