 Gríska eldhúsið er týpískt miðjarðarhafseldhús auk þess sem áhrifa gætir frá Balkanskaga, Anatolíu asíska hluta Tyrklands og Mið-Austurlöndum. Ólífuolían er það sem einkennir gríska matargerð hvað mest og hefur gert frá fornu fari. Ólífur eru ræktaðar um gjörvallt Grikkland og eru nánast hluti af hverri máltíð. Aðal korntegundin er hveiti en bygg er einnig talsvert ræktað þar. Tómatar, eggaldin, kartöflur, grænar baunir, fræbelgir, grænar paprikur og laukur gegna öll mikilvægu hlutverki í grískri matargerðarlist. Hunang á Grikklandi er að megninu til blómahunang úr hunangslegi ávaxta- og sítrustrjáa. Gríska eldhúsið notar sum krydd oftar en önnur miðjarðarhafseldhús. Oreganó, mynta, hvítlaukur, laukur, salt og lárviðarlauf eru mjög algeng. Önnur algeng krydd eru basilíka, timjan og fennel fræ. Margar grískar uppskriftir nota sæt krydd í samblandi með kjöti, til dæmis kanil og negull. Mynta og múskat eru einnig mjög algeng. Önnur týpísk hréfni í grískri matargerð er lambakjöt, svínakjöt, kalamata ólífur, feta ostur, grasker og jógúrt. Hnetur og hunang eru allsráðandi í grískum eftirréttum. Þessi landshluti hefur í gegnum tíðina hyglt framleiðslu geita og sauðfjár umfram nautgripi og því eru nautakjötsréttir frekar sjaldgæfir í grískri matargerð. Fiskur er algengur sérstaklega á eyjum og á standlengjum landsins. Þá er fjölbreytt úrval af ostum notað, þá einkum Feta, Kasseri, Kefalotyri og Mizithra. Hefðbundin grískur matur er einfaldur, litríkur og hlaðinn bragðmiklum kryddum. Þótt margir réttir beri keim af forsögu Grikklands, bera þeir sín sérkenni sem lítið hafa breyst í gegnum árin. Grísk matargerðarlist hefur langa hefð fyrir vandaða matargerð og fjöldi grískra rétta hafa enn ekki verið uppgötvaðir af ferðamönnum sem heimsækja þetta fallega land. Grískar uppskriftir: Grísk baklava eftirréttur fyrir 10 manns Fylling: 500 gr valhnetur, saxaðar 60 gr sykur 1 tsk kanill Deig: 500 gr. vatnsdeig 180 gr ósaltað smjör Sýróp: 230 gr. sykur 300 ml vatn 2 kanilstangir 2 tsk sítrónusafi Ögn af sítrónuberki 2 msk hunang Leiðbeiningar: -
Blandið öllu hráefninu fyrir fyllinguna í skál. Berið smjör á botn og hliðar hringlaga bökunardisks. Leggið eitt lag af vatnsdeigi ofan í ílátið og látið 2 cm umfram til að gera ráð fyrir að deigið skreppur saman. Penslið hvert lag af vatnsdeiginu með bræddu smjöri og berið það eins jafnt á deigið og hægt er. Leggið 5 lög af vatnsdeigi ofan á hvert annað í bökunarílátið. Því næst hellið þunnu lagi af fyllingunni yfir deigið og bætið við 3 lögum af vatnsdeigi. Bætið aftur þunnu lagi af fyllingu yfir og setjið 2 lög til viðbótar af vatnsdeigi. Hellið eftirstöðvum af fyllingunni og dreifið jafnt úr henni og bætið að síðustu 7-8 lögum af vatnsdeigi ofan á. Munið að pensla hvert lag með bræddu smjöri. -
Penslið efsta lagið vel með smjöri svo það verði stökkt og gyllt á litinn. Skerið í efstu lögin af deiginu í eins og tígla. Athugið að skera ekki öll lögin, aðeins þau efstu. Þetta er gert til þess að auðvelda að skera kökuna og lyfta henni á annan disk þegar bakstri er lokið. -
Dreifið með fingurgómunum vatnsdropum yfir kökuna og setjið inn í forhitaðan ofn við 190°C í 15 mínútur. Lækkið því næst hitann í 180°C í 20 mínútur. -
Á meðan útbúið sýrópið. Setjið allt hráefni fyrir sýrópið fyrir utan hunangið í pott og hrærið í til að bræða sykurinn. Látið malla í 6-8 mínútur og bætið þá hunanginu út í. Látið malla í 5 mínútur til viðbótar þar til það þykknar aðeins. -
Látið grísku baklava kólna, hellið því næst heita hunanginu án þess að það sjóði yfir í gegnum sigti. Látið standa. Tzatziki – grísk jógúrtídífa meðlæti fyrir 4 500 gr. hreint jógúrt 1 agúrka 4 hvítlauksgeirar Salt Olía Vínedik Leiðbeiningar: -
Merjið hvítlaukinn og blandið honum saman við salt og vínedik. Skrælið agúrkuna, skerið hana niður í litla bita og pressið allan safa úr henni í skál. -
Setjið jógúrtið í skál ásamt agrúrkunni. Blandið svo hvítlauknum saman við. -
Hrærið þessu vel saman. Bætið olíu út í og hrærið vel saman. -
Tzatziki er venjulega borin fram köld. Grískt salat meðlæti fyrir 4 3-4 tómatar 1 laukur Feta ostur 1 agúrka Ólífuolía Salt Ólífur Óreganó Leiðbeiningar: 1. Skerið tómatana, laukinn og agúrkuna í sneiðar. Blandið þessu saman, bætið við salti og bitum af feta ostinum, óreganó, ólífum og hellið að lokum ólífuolíu yfir. Moussaka fyrir 6 1kg ferskt og gott eggaldin 160 ml grænmetisolía 1 stór laukur, fínsaxaður 450 gr nautahakk 1 glas grískt hvítvín 350 gr. ferskir trétómatar 1400 gr tómatar saxaðir, síið hluta af safanum frá 1 tsk kanill 1 tsk allrahanda krydd Salt og svartur pipar 1 tsk oreganó 25 gr rifinn parmesan ostur Söxuð steinselja Brauðmylsna Leiðbeiningar: -
Moussaka á að vera bökuð í ofnskúffu í ofni. Að elda Moussaka er tímafrekt og algengt er að taka tvo daga í að undirbúa hráefnið, til dæmis að elda kjötið daginn áður. Eggaldinið verður ávallt að steikja sama dag og bera á réttinn fram. -
Skerið eggaldinið frá toppi til táar án þess að afhýða það. Hreinsið aldinið og skerið í 75 mm þykkar sneiðar og leggið í saltvatn í 30 mínútur. Fjarlægið, kreistið varlega, þerrið og kreistið varlega aftur. Látið þorna í sigti. Steikið því næst í heitri grænmetisolíu þar til eggaldinið verður fölgult á báðum hliðum. Það má djúpsteikja eggaldinið sem er auðveldara, en það dregur í sig mikla olíu. Þerrið því næst með pappír og setjið í fat til að mesta af olíunni renni í burtu. -
Brúnið laukinn í 2 msk af olíu á pönnu. Bætið við kjötinu og steikið saman. Hrærið í af og til þar til kjötið fer að skipta um lit. Hellið víninu út í, tómötunum fínt söxuðum, kryddunum, salti og pipar og óreganó. Setjið lok yfir og eldið í 20 mínútur, hærið í af og til. Bætið svo rifnum parmesan osti yfir og steinselju. -
Bræðið smjör í potti. Takið það svo af hitanum, bætið hveiti saman við og hrærið svo það samblandist. Setjið aftur á helluna og bætið saman við mjólk og kryddinu. Hrærið stöðugt í. Látið malla svo í 9-10 mínútur og hærið í þar til sósan hefur þykknað umtalsvert. Takið pönnuna af hellunni, látið hana standa. Bætið ostinum og eggjarauðunum út í sósuna. Hrærið vel saman. Ekki láta sósuna sjóða eftir þetta. -
Setjið helminginn af eggaldinu í botninn á eldföstu móti. Dreifið svo helmingnum af kjötblöndunni yfir eggaldinið. Setjið restina af eggaldinu ofan á og restinni af kjötblöndunni ofan á það. Hellið varlega sósunni yfir, rífið parmesan ost yfir og brauðmylsnu. -
Moussaka má innihalda lag af þunnt skornum kartöflum sem þá eru steiktar fyrst og hafðar sem fyrsta lag áður en eggaldin er lagt ofan á þær. -
Bakið í forhituðum ofni við 180°C í 1 klukkustund þar til yfirborðið er gyllt og stökkt. Látið standa í 5 mínútur áður en borið er fram. Skerið í ferninga ca 8 cm þykka. Marineraðir tómatar meðlæti fyrir 2-3 2 bufftómatar, afhýddir 2 hvítlauksgeirar pressaðir 2 msk steinselja fíntsöxuð ½ tsk þurrkað óreganó 2 msk ólífuolía Sjávarsalt Nýmalaður pipar Leiðbeiningar: -
Skerið tómatana í fernt með litlum beittum hnífi. Fjarlægið varlega kjarnann, kjötið og steinana. Skerið tómatana í litla teninga og setjið í litla skál. -
Bætið hvítlauk, steinselju og óreganó saman við. Dreypið ólífuolíu yfir og kryddið með salti og pipar eftir smekk. Látið marinerast við stofuhita í a.m.k. 1 klukkustund áður en borið er fram. Grískt andaterrine aðalréttur fyrir 6 1 kg andabringur 300 gr kumquat ávöxtur 100 ml þurrt serrí 20 gr. þurrkaðir ávextir 100 gr rjómi 8 gr. gelatín 200 ml Merlot rauðvín 100 gr. smjör 200 gr. grænmeti (gulrætur, laukur, sellerý, hvítlaukur) 1 lítri kjúklingakraftur Salt og pipar Ferskt timjan Leiðbeiningar: 1. Setjið smjörið á steikarpönnu, bætið andabringunum út í eftir að hafa kryddað þær með salti og pipar. Látið eldast rólega í 10 mínútur í víninu. Bætið grænmetinu og kjúklingakraftinum út í og látið eldast við lágan hita í 30 mínútur. 2. Látið gelatínið liggja í köldu vatni í um 10 mínnútur. Leysið upp á pönnu í 3 mínútur og bragðbætið með sherrýinu og rauðvíni. Hellið helmingi af hlaupinu í hringlaga skál. Skerið öndina í stóra bita og bætið þurrkuðu ávöxtunum, rjómanum og restinni af hlaupinu saman við. Stráið salti og pipar og hellið blöndunni í skálina. Látið standa í 6 tíma í kæli þar til hráefnið loðir vel saman. Fjarlægið úr skálinni og skerið í sneiðar. 3. Berið fram á diski ásamt þurrkuðum og ferskum ávöxtum ásamt bláberjasultu.
|