Levante

Levante hérað liggur nánast alveg yfir alla austurströndina. Það inniheldur tvö lítil héruð sem kallast Múrcia þar sem Alicante er og Valensía sem er þekktast fyrir frægasta rétt Spánverja þ.e. Paella. En þeir eru ekkert síður frægir fyrir safaríka appelsínurækt. En það er mikilvægasta útflutningsvara Valensíubúa. Enda gefur héraðið af sér meira en fjórar milljónir tonna af appelsínum á ári hverju.

Valensía er höfuðborg hérðsins og er fræg af glæsibrag bygginga frá miðöldum og endurreisnartímabilinu. Sveitirnar í kring eru líka mjög aðlaðandi og yndislegar að íbúarnir kalla þær himnaríki á jörðu.

Levante hérað er þekkt fyrir góða hrísgrjónarétti og allskonar kjöt-, fisk- og baunapottrétti. Hér er öllu blandað saman og útkoman alveg lygileg. Þetta fer algjörlega eftir því hvar á austurströndinni maður er staddur.

Sniglar eru líka vinsælir á matseðli Levantebúa, þeir eru tíndir upp líkt og menn tína sveppi, nema hvað að notað er edik og salt til þess að hreinsa þá.