|
Alsace og Lorraine liggja að landamærum Þýskalands og eiga Frakkar og Þjóðverjar sameiginlegar matarhefðir. En þó að matargerð á svæðinu sé svipuð og hjá nágrönnunum þá er hún mun léttari og fínlegri. Svínakjöt er vinsælasta kjötið og bændabýli í héraðinu framleiða fjölbreytt úrval af bökum, kæfum, blóðbúðingi, söltuðum og þurrkuðum svínamögum og “sauccisson”. (reyktum og þurrkuðum pylsum). Frægustu réttir héraðsins eru “Choucroute Garnie” (súrkál, svínakjöt og pylsukássa bragðbætt með einiberjum) og “Tarta Flambee alsacienne” (þunn deigterta með fleski, rjóma og lauk) sem eru dæmi um þýsk áhrif. Lorraine er frægast fyrir sitt “Quiche Lorraine” en íbúar Alsace eru mjög stoltir af “Foie Gras”, gæsalifur sem þar er framleidd. Hvítkál, kartöflur og sveppir er mest notaða grænmetið og er ásamt villibráðarkjöti úr skógunum, svo sem villisvína- og hjartarkjöti, undirstaða gómsætrar matargerðar á svæðinu. Úr vötnum og ám í héraðinu koma silungur, vatnakarfi, gedda og aborri sem oft eru soðin í “vin gris” sem er ljósrautt rósavín. Aðalostar svæðisins eru hinir heimsfrægu “Munster”, “Vacherin” og fjölbreytt úrval ferskra osta, oft bragðbættra með kryddjurtum, meðal þeirra eru “Brouére” og “Gerome”. Bæði héruðin geta státað af ríkulegu framboði af sætindum, svo sem gómsætum kökum, t.d. má nefna makkarónukökur, bökur og súkkulaðikökur. Ávextir á svæðinu eru trönuber, bláber og Mirabelle-plómur sem eru notaðar í dásamlegar tertur og sultur. Uppskrift frá Alsace: Tarte Flambée Alsacienne - Beikon- og laukbaka með sýrðum rjóma 500 g tilbúið pitsudeig 2 stórir hvítir laukar – sneiddir í þunna hringi 60 g beikon – skorið í litla bita 2 dl creme fraiche (sýrður rjómi) 150 g rjómaostur eða kvargostur 1 msk olía salt, pipar og múskat Leiðbeiningar: 1. Hitið ofninn í 270°C 2. Steikið laukinn í 3–4 mínútur, þar til hann fer að brúnast, setjið svo á disk til að kólna. Steikið beikonbita svo þeir verði létt stökkir. 3. Blandið síðan saman rjómaosti, sýrðum rjóma, lauk og beikoni, kryddið með salti, pipar og múskati. 4. Fletjið pitsudeigið þunnt og leggið á bökunarplötu, smyrjið ostablöndunni jafnt yfir. Dreypið 1 msk olíu yfir og bakið í 15–20 mínútur.
|