Normandy hefur lengi verið eitt af fínustu matargerðarsvæðum Frakklands. Á eina hlið liggja mörk þess að sjó en upp af ströndinni er frjósamt akurlendi með ótal ám og gróskumiklum ávaxtagörðum. Meðal annars vaxa þar gómsætir ávextir sem notaðir eru í margs konar eplasafa og Calvados. Svæðið er vel þekkt fyrir sjávarrétti sína ásamt mjólkurvörum, eplum, perum, pylsum og ostum eins og Camembert og Livarot. Normandy er stærsti framleiðandi ostra í Frakklandi, svo stór að ein af hverjum þremur ostrutegundum sem borðaðar eru í Frakklandi koma frá Normandy. Sumar af bestu ostrum svæðisins eru frá St-Vaast-la-Hougue en önnur góð ostrusvæði eru Mont St-Michel-flóinn og Isigny-Grandcamp-ströndin. Ekki er “coquilles St-Jacques” (hörpuskelfiskur) síður vinsæll en þetta er fínasti rétturinn á flestum veitingahúsum á ströndinni á veturna því hörpuskel er aðeins unnin frá október til maí. Normandy er mesta hörpuskelfisksvæði Frakklands og þaðan koma 65–75% af heildarframleiðslu landsins. Þar eru einnig framleidd 25–30% af kræklingsframleiðslu í Frakklandi, sem er markaðssettur undir merkinu Moules de Bouchot sem var skráð 1994 og tryggir hágæðakrækling. Flatfiskur (e.sole) hefur jafnan verið talinn bestur fiska í matarhefð Normanna, sérstaklega í strandhéraðinu Seine Martime, en sandhverfa, vartari og borri eru allir vinsælir. Mjólkurvinnsla er mikil í Normandy og smjör er þekkt sem “crus” en vín og freyðivín er líka framleitt þar. Isigny-svæðið er sérstaklega frægt fyrir smjörframleiðslu og rjómavörur. Ostur er líka áberandi með öllum réttum og veitingahús á Normandy halda við ostahefðinni. Þrír þekktustu ostarnir eru Camembert, hinn bragðsterki Pont l’eveque og Livarot. Nautakjöt í þessu mjólkurafurðahéraði er oftast kálfakjöt af nautkálfum. Lambakjöt er sérréttur hins vestlæga Manche-strandhéraðs, en lömbin alast upp á söltum sléttum við Mont saint-Michel-flóann og beitilöndum við ströndina og kjötið verður því mjúkt og með sérstöku bragði. Það fullkomnar máltíðina í Normandy-héraðinu að borða sneið af “tarte aux pommes” með þykkum rjóma og glasi af Calvados (eplasnafs). Uppskrift frá Normandy: Poulet Normandy - Rjómalagaður kjúklingapottréttur með eplum og pekanhnetum 2 msk hveiti 1 tsk þurrkað timjan 2 kjúklingabringur og -leggir 3 msk olía 150 ml brandí 100 g sneiddir sveppir 100 g saxaðar pekanhnetur 300 g flysjuð og sneidd epli ½ laukur sneiddur 250 ml eplasafi 250 ml rjómi Leiðbeiningar: 1. Blandið saman hveiti og timjan í skál, þekið kjúklingabitana vel með hveiti. 2. Steikið bitana í stórri pönnu á vægum hita þar til byrjar að brúnast, hellið svo brandí á pönnuna. Eftir 2–3 mínútur er bætt við eplum, pekanhnetum, sveppum og lauk og eldað í 2–3 mínútur í viðbót. 3. Síðast skal hræra út í eplasafa og rjóma, leyfið þessu að malla í 3–5 mínútur og bragðbætið með salti og pipar.
|