Poitou - Charentes
Þú ert hér: Forsíða arrow Fróðleikur arrow Heimsins eldhús arrow Frakkland arrow Poitou - Charentes
ImageHeitt loftslag og frjósamt ræktunarland sér matreiðslumönnum svæðisins fyrir frábæru úrvali af ferskum framleiðsluvörum. Matreiðsla hér er bragðmikil og örlát og byggist á framleiðslu íbúa á svæðinu, auk villibráðar, að viðbættu bragðmiklu víni og rjómasósum. Pottsoðnar svínakjötslengjur með nýju brauði eru frábær réttur með vínsmökkun. Kjötréttir eru m.a. kanína eða héri, fyllt með kálfa- eða svínakjöti, og skinka eða kæfa skreytt með trufflum í böku. Fiskréttir eru m.a. ýsubúðingar og ofnbakaðir réttir, sérstaklega úr silungi og vatnakarfa, og hið víðfræga “Quenelles de Brochet”, geddu-fiskbollur með rjómalagaðri humarsósu.


Poitou Charentes-héraðið tilheyrði upprunalega Stóra Bretlandi (ásamt Aquitane svæðinu), það er mjög þekkt fyrir matseld í háum gæðaflokki.


Þekktasta útflutningsvaran er koníak, frá borginni Cognac, sem er þekkt fyrir gæði um allan heim. Önnur stjörnuframleiðsla er “Marenne D’Oleron”, ostran sem þekkt er sem drottning frönsku strandarinnar og er dálæti allra unnenda sjávarrétta. Hún er framleidd í samræmi við stranga staðla og tekur fjögur ár að vaxa áður en hún er nýtt. Þessar ostrur, ásamt “Bouchon”- kræklingi frá sama héraði, eru frægar sem hinar bestu í öllu Frakklandi.


Flæðiland Poitevin skapar upplögð vaxtarskilyrði fyrir mikinn fjölda baunategunda þar sem “Mojhette” afbrigðið er vinsælast og er matreitt með lauk, hvítlauk og tómötum sem úr verður kássa sem er borin fram bæði með kjöti og fiski. Sveppir eru tíndir á svæðinu en loftslagið í vesturhéraðinu er upplagt og þar er framleitt meira magn og fleiri tegundir af sveppum en annars staðar er gert. Ostar sem vert er að leita að eru m.a. “St-Benoit” og “St-Paulin” sem gerðir eru úr kúamjólk en mest er úrvalið af geitarjómaostum.


Meira en 195 markaðir eru starfræktir í hverri viku í héraðinu og fjölbreytni í framboði ávaxta og grænmetis er óendanleg.


Uppskrift frá Poitou Charentes:


Valhnetupaté


2 msk olía

1 stór laukur – smátt saxaður

2 hvítlauksrif – smátt söxuð

2 sellerístönglar – smátt saxaðir

1 msk hvítvínsedik

100 g malaðar valhnetur

1 dós (425 g) kjúklingabaunir

4 msk gróft sinnep

1 msk steinselja – söxuð

1 msk sítrónusafi

salt og pipar


Leiðbeiningar:


1. Látið lauk, hvítlauk og sellerí saman á pönnu með olíu og látið krauma á lágum hita þar til mjúkt.


2. Hrærið ediki saman við og leyfið að kólna. Blandið öllum hráefnunum saman í matvinnsluvél og maukið vel. Látið standa í kæli í klukkustund áður en borið er fram.