TOSCANA
Toscana, sem fræg er fyrir listir, byggingarlist, ávalar hæðir og mjúkar strendur er vagga endurreisnarinnar. Það er þessi vinsæli ákvörðunarstaður ferðamanna sem gaf okkur Da Vinci, Michelangelo og Puccini. Því vekur það ekki undrun að Toscana er vagga alls þess besta í hinni skapandi og glæsilegu ítölsku matargerðarlist.

Toscana-matargerð er oft lýst sem “una cucina povera”, þ.e. fátæklegu eldhúsi. Einkennandi fyrir allan mat í Toscana eru hin miklu gæði hráefnanna og fjölbreytt notkun kryddjurta þar sem hæst ber timjan, salvíu, rósmarín, estragon, fennel og rauðan pipar. Olía og brauð eru áberandi í þessari einföldu matargerð. Grænmeti, hvort sem það er grillað, steikt eða hrátt, er alltaf bragðbætt með ólífuolíu. Og engin Toscana-máltíð væri fullkomin án hins hefðbundna ósaltaða brauðs.

Toscana-búar halda sig frá feiti en halla sér fremur að matreiðslu á spjóti eða grilli. Lambakjöt, nautakjöt, kjúklingur og kanínukjöt er venjulega steikt með rósmarín eða fennel eða grillað. Flestir réttir eru bornir fram með sítrónubátum sem koma í stað sósu. Með ströndinni eru réttir búnir til úr fiski, t.d. álaungum sem veiddir eru í mynni Arno-árinnar, sérréttur sem aðeins er hægt að fá í Toscana.

Ólífuolía er svo vinsæl í matargerð Toscana að hún er jafnvel notuð sem sætindi, eins og uppáhaldsrétturinn á svæðinu, “castagnaccio”, sem er kaka með ólífuolíu, kastaníuhnetumjöli, fennel, rúsínum og furuhnetum. Venjulega eru ábætisréttir jafn einfaldir eins og annar matur í Toscana. Algengur eftirréttur er biscotti sem dýft er í sætvín héraðsins, “Vin Santo”. “Panforte” (sterkt brauð) er bragðmikil, flöt kaka sem var fundin upp á krossfaratímanum og nýttist hermönnunum en er nú borðuð um alla Ítalíu, sérstaklega um jólaleytið.

 

Uppskrift frá Toscana:


Kastaníu-, rósmarín- og sítrónukaka

 

500 g kastaníuhnetumjöl

50 ml vatn

50 g furuhnetur

50 g valhnetur

100 g rúsínur

50 ml ólífuolía

1 egg

rósmarín

sítrónubörkur

 

Leiðbeiningar:

 

1. Stillið ofninn á 190°C.

 

2. Leysið mjölið upp í vatninu, bætið svo við hnetum, eggi, rúsínum, olíu og laufunum af stórum rósmarínstilk.

 

3. Þetta á að vera mjög þykkt deig. Setjið í vel smurt skúffukökuform. Bakið í einn klukkutíma eða þar til skorpa hefur myndast á yfirborðinu.