Bollamál
Þú ert hér: Forsíða arrow Fróðleikur arrow Nanna arrow Spurt og svarað arrow Bollamál

Nánar um fyrirspurnina:

Ég á alltaf í vandræðum þegar magn i uppskriftum er gefið upp i bollum. Hvað er einn bolli mörg grömm? Ég hef verið að skoða ýmsar uppskriftabækur og i einni er sagt að einn bolli sé 250 gr, i annari 125 gr.

Fullt svar:

Tölurnar sem þú nefnir geta reyndar báðar staðist - það er nefnilega verið að mæla allt aðra hluti þegar mælt er í bollum (rúmmál) en þegar mælt er í grömmum (þyngd). Hráefnin geta verið mjög misþung í sér. Ef miðað er við staðlaðan amerískan mælibolla (237 ml), þá er einn bolli af sykri til dæmis einhvers staðar nálægt 225 grömmum. Einn bolli af hveiti er aftur á móti um 130 grömm eða rúmlega það. Það er semsagt ekki hægt að umreikna úr bollum yfir í grömm og öfugt nema maður viti nokkurn veginn hvað hvert hráefni um sig er þungt í sér.

Svo er hitt vandamálið: Það er ekki til staðlaður íslenskur mælibolli og fólk er ekkert sammála um hvað einn bolli sé stór og það getur munað ansi miklu - ég hef stundum séð umræður á netinu og víðar og þar er fólk að nefna tölur allt frá 150 ml (1 1/2 dl) upp í 275 ml, þótt 200 og 250 ml séu líklega algengustu tölurnar. Þetta skiptir kannski engu máli þegar maður er bara með sínar uppskriftir og notar alltaf sama bollann. Vandamálið kemur þegar farið er eftir uppskriftum frá öðrum - maður notar kannski mælibolla sem er 250 ml en deigið verður afskaplega undarlegt vegna þess að sá sem setti uppskriftina á netið eða í blaðið miðaði við bláa kaffibollann hennar ömmu og hann er 175 ml ...

Þetta er ástæðan til þess að ég er frekar mótfallin bollum sem mælieiningu, nota ekki bollamál í mínum uppskriftum og sneiði satt að segja gjarna hjá uppskriftum þar sem allt er gefið upp í bollum. Þetta er eiginlega handónýt mælieining. Ef ég þarf að fara eftir uppskrift þar sem bollar eru notaðir, þá er reyndar allt í lagi ef þetta er bandarísk uppskrift, þá veit ég að bollinn er 237 ml (ég miða þó oftast við 225 ml því að þessir 12 ml sem munar eru innan við matskeið); ástralskur bolli er 250 ml og sá breski einnig nú orðið (en var stærri áður). Ef uppskriftin er íslensk (eða t.d. dönsk) rennir maður í rauninni blint í sjóinn en eins og ég sagði áðan er algengast að miðað sé við bolla sem er 200-250 ml (2-2 1/2 dl) og ég fer þá milliveginn og mæli 225 ml. Það er oftast nær í lagi en þó kemur fyrir að ég sé að það er eitthvað sem ekki stemmir, venjulega vegna þess að sá sem gaf uppskriftina var með töluvert minni bolla.

Þetta er nú orðið nokkuð langt svar við einfaldri spurningu en einfalt svar er semsagt ekki til. Ég mæli með því að þú finnir þér bolla af hentugri stærð (225 ml eða 2 1/4 dl held ég að sé best), mælir nokkur algeng hráefni og vigtir þau - skrifir þetta á lista og geymir á góðum stað, t.d. límdan innan á skáphurð í eldhúsinu. Einnig er hægt að finna svona lista á netinu og í ýmsum bókum, t.d. í Matarást.