Epla- og kanilmúffur
Þú ert hér: Forsíða arrow Fróðleikur arrow Nanna arrow Spurt og svarað arrow Epla- og kanilmúffur

Nánar um fyrirspurnina:

Ég hef verið að leita að uppskrift að muffins með eplum og kanil en ekki fundið neina. Lumar þú á einni slíkri?

Fullt svar:

Mér dettur í hug þessi bandaríska uppskrift, sem mig minnir að hafi þótt nokkuð góð þegar ég prófaði hana. Reyndar eru hnetur í henni en ef þú vilt þær ekki má alveg sleppa þeim. Í þeim er olía í staðinn fyrir smjör eða smjörlíki en það mætti líka nota bráðið smjör. Eplin eru rifin gróft en ef þú vilt heldur hafa þau í bitum ætti það að vera í lagi - ég mundi þó kannski rífa helminginn og skera hitt í litla bita.


Epla- og kanilmúffur


2 egg

100 g ljós púðursykur (má líka vera dökkur)

1 tsk vanillusykur

175 ml bragðmild jurtaolía

3 dl grófrifin epli, t.d Jonagold

75 g valhnetur, grófsaxaðar

300 g hveiti

2 tsk kanill

1 tsk engifer (duft)

1 tsk matarsódi

1/2 tsk lyftiduft

1/2 tsk salt

Hitaðu ofninn í 180°C. Þeyttu egg, púðursykur og vanillusykur vel saman og þeyttu svo olíunni saman við. Bættu við rifnum eplum (þrýstu þeim dálítið ofan í mælikönnuna þegar þú mælir þau) og hnetum og sigtaðu svo saman hveiti, krydd, lyftiefni og salt og blandaðu saman við - hrærðu ekki meira en þarf til að allt blandist vel saman. Settu deigið í smurð múffuform úr málmi eða silíkoni eða í tvöföld pappírsform (kúfuð matskeið í hvert) og bakaðu múffurnar í miðjum ofni í 25-30 mínútur, eða þar til þær hafa lyft sér vel og tekið lit.