|
Heimagerð "condensed milk"
|
Spurning: Ég er með bandaríska uppskrift þar sem á að nota condensed milk. Er eitthvað hægt að nota i staðinn?
Svar: Condensed milk eða sæt niðursoðin mjólk er notuð í ýmiss konar eftirrétti, kökur og sælgæti bæði í Bandaríkjunum (aðallega Suðurríkjunum), Rómönsku Ameríku, Asíu og víðar. Það er ekkert mál að búa til eftirlíkingu sem kemur í langflestum tilvikum að sama gagni:
125 ml sjóðandi vatn 2 msk smjör, lint eða bráðið 200 g sykur 500 ml undanrennuduft Vatninu hellt í blandara eða matvinnsluvél og smjöri og sykri þeyttsaman við. Síðan er þurrmjólkurduftinu hellt saman við í 3-4 skömmtumog þeytt vel á milli. Þetta ætti að geymast í nokkra daga i kæli.
|