Hreindýramarínering
Þú ert hér: Forsíða arrow Fróðleikur arrow Nanna arrow Spurt og svarað arrow Hreindýramarínering

Nánar um fyrirspurnina:

Er á leiðinni í Nóatún til að kaupa mér hreindýr fyrir jólin. Er búinn að sjá að þið eruð með finnskt hreindýr á boðstólnum. Mér hefur fundist erlent hreindýrakjöt ekki eins bragðgott og það íslenska og hef hug á að marinera það í staðinn. Ert þú með einhverja góða marineringaruppskrift fyrir hreindýr á takteinunum? Er búinn að leita nokkuð víða en finn ekki neitt.

Fullt svar:

Ég fór að athuga hvað ég ætti til af uppskriftum. Kanadíska hreindýramatreiðslubókin mín reyndist sorglega fátæk að maríneringauppskriftum; fann reyndar eina sem innihélt m.a. tvo bolla af viskíi en var ekki af því tagi sem maður notar í tilraunir með jólasteikina ...

Efnilegasta uppskriftin sem ég fann var í grænlenskri matreiðslubók og samanstóð af púrtvíni, sítrónusafa og innihaldi úr rjúpnasarpi – en hún er víst frekar óraunhæf á þessum síðustu og verstu tímum.

Þannig að þá eru það bara skandinavísku bækurnar og þar er slatti af uppskriftum sem ættu að koma að gagni. Margar þeirra eru rauðvínsmaríneringar og yfirleitt er olía í þeim, stundum svolítið edik. Rósmarín og timjan eru algengustu kryddjurtirnar (það væri líka tilvalið að nota þurrkað blóðberg) en lárviðarlauf og salvía koma einnig fyrir. Kryddjurtabragðið á aldrei að yfirgnæfa bragðið af kjötinu og þess vegna er best að nota ekki mjög mikið. Einiber eru mjög gjarna notuð en sumir fella sig ekki við einiberjabragð og það má allavega ekki nota of mikið – 8-12 marin einiber ætti að vera hæfilegt. (Einnig mætti nota skvettu af séniver í kryddlöginn.) Svo auðvitað piparkorn en það er best að sleppa salti og salta bara kjötið áður en það er steikt.

Ég notaði þessa maríneringu einhvern tíma á sænskt hreindýralæri, með góðum árangri:

Villibráðarkryddlögur


250 ml rauðvín
100 ml bragðmild olía
1 msk rauðvíns- eða balsamedik
1 tsk piparkorn, grófmulin
nokkrar timjangreinar (eða rósmarín; ekki hvorttveggja)
2 lárviðarlauf, mulin
e.t.v. nokkur einiber, marin

Öllu blandað saman og kjötið látið liggja í blöndunni í kæli í nokkra klukkutíma eða til næsta dags (jafnvel lengur ef stykkið er stórt, lærið lá í 2-3 sólarhringa). Lögurinn er svo soðinn, síaður og notaður í sósuna.

Ef fólk vill ekki rauðvínslög má sleppa víninu en nota aðeins meira af ediki.