Hreindýrsklumpur - meðlæti
Þú ert hér: Forsíða arrow Fróðleikur arrow Nanna arrow Spurt og svarað arrow Hreindýrsklumpur - meðlæti

Nánar um fyrirspurnina:

Ég er að fara að elda "hreindýraklump" og langaði að ath hvort hann mætti elda svipað og læri? Er búin að finna svo geggjaða uppskrift hjá Nóatúni og svo langaði mig einnig að ath með meðlætið, hvað er best með svona kjöti?

Fullt svar:

Jú, þú ættir að geta eldað þetta svipað og læri en þetta er magur biti sem er ekki eins meyr og t.d. fillet svo að það er líklega best að elda hann við vægan hita (125-130°C) í langan tíma (í lokuðu fati eða breiða álpappír yfir) og nota kjöthitamæli (ætti að sýna ca. 57°C þegar kjötið er tekið út) - eða þá nota aðferðina sem ég lýsi hér (fyrirspurn um hreindýrsklump):

http://www.noatun.is/frodleikur/nanna/spurt-og-svarad/faqnr/39/

Meðlætið gæti verið t.d. kryddjurtakartöflur (soðnar, litlar kartöflur, steiktar á pönnu í svolitlu smjöri og söxuðum kryddjurtum (steinselju, timjani eða t.d. rósmaríni) stráð yfir; ofnbakað rótargrænmeti (t.d. gulrætur, gulrófur í bitum, sætar kartöflur, nípur, kartöflubátar ef ekki eru aðrar kartöflur með); waldorf- eða eplasalat; smjörsteiktir sveppir kryddaðir með timjani og svolitlum hvítlauk; og svo mundi ég líklega hafa annaðhvort púrtvíns- eða villisveppasósu með en það eru auðvitað ýmsir aðrir möguleikar.