Kalkauðug fæða og æðakölkun
Þú ert hér: Forsíða arrow Fróðleikur arrow Nanna arrow Spurt og svarað arrow Kalkauðug fæða og æðakölkun

Nánar um fyrirspurnina:

Vinsamlegast miðlaðu mér af fróðleik þínum varðandi fæðu og eða uppskriftir sem hentar fólki með æðaköllkun en þarf jafnframt að borða kalkríka fæðu.

Fullt svar:


Ég held satt að segja að þú þurfir engar sérstakar uppskriftir, það eru til svo ótalmargar uppskriftir sem falla alveg að þessu eða er hægt að breyta svolítið - betra að vita nokkurn veginn hvað á að forðast og hverju á að sækjast eftir og laga svo uppáhaldsuppskriftirnar sínar að því að meira eða minna leyti, þannig að þær innihaldi sem mest af kalki en sem minnst af óhollri fitu.


Hvað kalkið varðar, þá er um að gera að nota sem mest af fitulitlum mjólkurafurðum í stað þeirra fituríku, því þær eru alveg eins kalkríkar - nota fjörmjólk, undanrennu eða léttmjólk, skyr, jógúrt, kotasælu, magran ost. Grænt grænmeti eins og spínat, spergilkál og grænkál er kalkríkt og hið sama er að segja um fræ, baunir, hnetur og möndlur, svo og ýmsar afurðir unnar úr baunum (t.d. tofu). Reyndar er töluverð fita í fræjum og hnetum en það er ómettuð fita sem ekki hefur áhrif á æðarnar. Appelsínur eru líka fremur kalkauðugar og eins ýmsir þurrkaðir ávextir.


Sardínur eru kalkríkar vegna þess að beinin eru borðuð með og einnig er gott að borða þær og aðra feita fiska eins og lax, silung og síld (í hófi auðvitað) af því að D-vítamín hjálpar líkamanum að taka kalkið til sín. Reyndar er best að auka fiskneyslu eins og hægt er en takmarka kjötneyslu við magurt kjöt - og engar unnar kjötvörur. Aftur á móti er um að gera að borða sem mest af grænmeti (einkum grænu grænmeti) og ávöxtum.


Forðastu fitu sem mest, einkum þó harða fitu og ekki síður transfitu, sem er að finna í mörgum unnum matvörum, t.d. ýmsu kexi og kökum, snakki, örbylgjupoppi, pakkasúpum og mörgu öðru. Hún verður vonandi bönnuð hér innan tíðar eins og búið er að gera í Danmörku. Mjúk fita (t.d. fljótandi olíur) er mun betri og hækkar ekki kólesteról í blóði og heppilegustu olíurnar eru ólífuolía, rapsolía, sólblómaolía, maísolía og sojaolía - ekki kókosolía.


Kaffidrykkju og kókdrykkju er best að stilla í hóf því að koffínið dregur úr kalkupptöku líkamans.


Annars er best að leita til næringarfræðings til að fá nákvæmari ráðleggingar.