Kartöflusalat með hangikjötinu
Þú ert hér: Forsíða arrow Fróðleikur arrow Nanna arrow Spurt og svarað arrow Kartöflusalat með hangikjötinu

Nánar um fyrirspurnina:

hefur þú á takteinum uppskrift af kartöflusalati sem á að vera með köldu hangikjöti og ekki er með miklu af majónesi?

Fullt svar:

Hér er uppskrift að kartöflusalati sem má svo breyta á ýmsa vegu eftir smekk og eftir því með hverju á að bera það fram – en með hangikjöti mundi ég mæla með svolitlu af eplum og selleríi. Og svo mætti reyndar líka setja eins og einn bolla af köldum, soðnum makkarónum.


Kartöflusalat


800 g- 1 kg kartöflur
1 dós sýrður rjómi, 10%
4 msk majónes (eða súrmjólk en þá er betra að nota 18% rjóma)
½ laukur, rifinn eða mjög smátt saxaður
2 tsk sætt sinnep, eða eftir smekk
1-2 tsk sítrónusafi
1 grænt epli, saxað smátt
pipar, helst hvítur
salt eftir smekk


svo má bæta við einhverju af eftirtöldu, ef stemmning er fyrir því:
1-2 sellerístönglum, söxuðum smátt
lófafylli af klettasalati
nokkrum blöðum af smátt saxaðri basilíku (eða steinselju eða graslauk)
nokkrum kaperskornum eða smátt saxaðri sýrðri gúrku

Kartöflurnar soðnar og flysjaðar (mér finnst rauðar kartöflur einna bestar en annars má nota allt nema bökunarkartöflur), skornar í hæfilega stóra bita og látnar kólna dálítið, en salatið verður best ef þær eru volgar þegar þeim er blandað saman við, þá gengur sósan betur inn í þær. Sýrður rjómi, majónes, laukur, sinnep og sítrónusafi hrært saman í skál, kartöflum og eplum blandað saman við (ásamt öðru hráefni ef það er notað) og kryddað með pipar og salti eftir smekk. Kælt í a.m.k. hálftíma. Laukbragðið verður meira eftir því sem salatið bíður lengur og ef það er búið til með löngum fyrirvara getur verið ráðlegt að nota minna af rifnum lauk (og þá e.t.v saxaðan vorlauk í staðinn).

Ef salatið er t.d. með steiktu kjöti, ekki hangikjöti, er mjög gott að setja beikon út í það – steikja nokkrar sneiðar þar til þær eru harðar og stökkar, láta þær kólna á eldhúspappír og mylja þær svo smátt.