|
|
|
Pipar, hvítur og svartur - er einhver munur?
|
Nánar um fyrirspurnina: Ég sé að í uppskriftum er stundum talað um að nota svartan pipar, stundum hvítan, stundum er ekkert tekið fram um það. Er einhver bragðmunur á þessum tegundum og skiptir máli hvort er notað? Fullt svar: Já og nei. Í rauninni er svartur og hvítur pipar sama tegundin en svörtu piparkornin eru fræ sem tínd eru óþroskuð (græn) og síðan þurrkuð; hvítu kornin eru fræ sem eru látin þroskast til fulls áður en þau eru tínd og þurrkuð. Svartur pipar er yfirleitt ögn sterkari og ilmríkari – en þetta fer líka mjög mikið eftir því hve fínmalaður piparinn er og hvort hann er nýmalaður eða ekki. Hins vegar virðist fólk finna bragðmuninn misvel, sumir finna engan mun en aðrir skynja hann greinilega (eða segjast allavega gera það). Meginmunurinn er þó kannski útlitslegur. Í sumum réttum vill maður gjarna láta svartar, nýmalaðar piparagnirnar sjást greinilega en í ljósum sósum, súpum o.þ.h. getur verið betra að nota hvítan, fínmalaðan pipar. Ef þú ert t.d. að gera kartöflujafning er hann ekki eins girnilegur ef hann er fullur af svörtum ögnum – þá er betra að nota hvítan pipar.
|
|
|
|
|
|