Nánar um fyrirspurnina: Ég átti Bístroblaðið síðan um jólin í fyrra en næ ekki að finna það og hef mikið reynt að ná í það en þar var sveppasósa þar sem þurrsveppir voru bleyttir upp og sett saman við rjóma og látið sjóða saman lengi. Í því var sérstakur grænmetisteningur án gers í uppskriftinni ef það er betra að vita til að átta þig á við hvaða uppskrift er náð. Væri innilega þakklát ef þú gætir skráð uppskriftina af því. Fullt svar: Þetta er villisveppasósa frá Þorra Hringssyni, uppskriftin er hér: Villisveppasósa
20 g þurrkaðir villisveppir, t.d. kóngssveppur, furusveppur og lerkisveppur 300 ml sjóðandi vatn 2-3 tsk smjör 1 msk gráðaostur 1 tsk gerkraftur 250 ml rjómi ósaltað smjör salt, pipar og hrásykur Hitaðu 300 ml af vatni að suðu og helltu því yfir þurrkaða sveppina. Láttu standa í 30-45 mín. Síaðu þá sveppina frá en geymdu vatnið. Bræddu 2-3 tsk af smjöri í potti og steiktu sveppina í 2-3 mínútur. Bættu þá vatninu af sveppunum, gráðaostinum og gerkraftinum út í. Láttu sjóða í nokkrar mínútur eða þar til gráðaosturinn er bráðnaður. Bættu þá rjómanum út í og láttu sjóða við vægan hita í 3ö-40 mín. Bragðbættu með salti, pipar og örlitlum hrásykri. Best með önd, dúfu og lambi.
|