Fyrir krakka
Þú ert hér: Forsíða Vöruflokkar Fyrir krakka
|
 Verslanir Nóatúns bjóða upp á endalaust úrval af hollum og góðum mat í skólanestið fyrir hressa og hrausta krakka. Til þess að tryggja hámarkseinbeitingu og góða líðan í skólanum gegnir hollt og gott skólanesti lykilhlutverki, að ógleymdum sjálfum morgunverðinum. Mikilvægt er fyrir okkur öll að hafa fæðið fjölbreytt og ekki sakar þegar nestisboxið kemur okkur stöku sinnum á óvart. Sérstaka áherslu skal leggja á ávexti sem eru tilvaldir til að fá fjölbreytni í nestisboxið svo ekki sé talað um hvað þeir eru hollir og góðir.
Viltu fræðast meira um mat fyrir krakka ?
|