Vinsældir grænmetisfæðis hafa aukist gríðarlega undanfarin ár og fleiri og fleiri kjósa að auka hlutfall grænmetis í samsetningu fæðu sinnar, eða jafnvel snúa sér alfarið að grænmeti. Ástæðan er umræðan um velmegunarsjúkdómana svokölluðu og þá tilgátu að megnið af þeim megi rekja til óhóflegrar neyslu á dýrafitu, salti, hvítum sykri, rotvarnarefnum og matvæla ræktuðum með hjálp skordýraeiturs og fleiri kemískra efna.
Heilsusamlegt mataræði snýst ekki um að gerast grænmetisæta heldur miklu fremur að vera meðvitaður um hvað maður lætur ofan í sig. Einn þriðji af fæðu okkar á hverjum degi ætti að vera grænmeti.
Ávaxta- og grænmetisborð Nóatúns eru hrein upplifun með hámarks ferskleika og gæði í fyrirrúmi. Nóatún leggur mikla áherslu á gott samstarf við íslenska grænmetisbændur og leggur sig fram við að tryggja íslenskum neytendum aðgang að innlendri framleiðslu þegar hún er fáanleg. Á hverjum degi taka verslanir Nóatúns einnig á móti nýju grænmeti hvaðanæva úr heiminum. Þannig tryggjum við bestu fáanleg gæði hverju sinni.
Einnig er fjölbreytt úrval lífrænt ræktaðs grænmetis ávallt fáanlegt í verslunum Nóatúns.
Viltu fræðast meira um grænmeti ?