Kjötborðið
Þú ert hér: Forsíða Vöruflokkar Kjötborðið
|
|

Kjötborðið er ein helsta skrautfjöður Nóatúns. Á löngum og farsælum ferli hefur Nóatún þróað fyrsta flokks meðhöndlun og framsetningu á kjötvörum. Verslanir Nóatúns hafa á boðstólum mikið úrval af fersku kjöti sem afgreitt er beint úr kjötborði af valinkunnum fagmönnum. Kjötiðnaðarmenn og matreiðslumenn, öllum hnútum kunnugir, eru ávallt reiðubúnir að þjóna þér í hvívetna. Þegar saman fer ótrúlegt vöruúrval og frábær þjónusta þarftu ekki að fara annað. Ferskleiki og úrval í fyrirrúmiKjötborðNóatúns býður daglega upp á eitt mesta úrval af kjöti á Íslandi.Íslenskt lambakjöt, nautakjöt, svínakjöt, kálfakjöt, kindakjöt,villibráð, fjölbreytt úrval af gæðapottréttum, ljúffeng grillspjót ogmeðlæti eru meðal þess sem er á boðstólum. Kjötmeistarar okkar eruávallt reiðubúnir að brydda upp á spennandi marineringum á kjötið ogveita ráðgjöf. Vöruþróun daglegaNóatúnleggur mikinn metnað í vöruþróun sem fer fram í meistaraeldhúsiNóatúns. Afrakstur vöruþróunarinnar birtist í hverjum mánuði íkjötborðum Nóatúns. Gott samstarf Nóatúns við leiðandiframleiðslufyrirtæki á sviði kjötvöru tryggir viðskiptavinum Nóatúnsstöðugan aðgang að úrvals hráefni, af hámarks ferskleika og bestu gæði.Það er óumdeilt að Nóatún er best í kjöti!
Viltu fræðast meira um kjöt ?
|