Vöruflokkar
Þú ert hér: Forsíða Vöruflokkar
|
Gæðastaðlar Fyrir okkur í Nóatúni er góður matur ástríða og við álítum það hlutverk okkar að deila ástríðu okkar með viðskiptavinum sem heimsækja verslanir Nóatúns á degi hverjum. Starfsemi Nóatúns og vinnubrögð starfsfólks taka mið af þessu í daglegu starfi. Við leggjum mikinn metnað í allt sem við gerum til þess að vörugæði, framboð og framsetningar standist ítrustu kröfur sem til verslana okkar eru gerðar. Við leggjum mikla áherslu á þjónustu og að umhverfi verslunarinnar sé afslappað og þægilegt meðan á verslunarferð stendur. Gæðastaðlar Nóatúns - Með metum hverja og eina vöru af kostgæfni áður en hún fer í vöruval verslana okkar.
- Við leggjum sérstaka áherslu á fjögur ferskvörusvið: kjöt, fisk, ávexti og grænmeti auk brauðmetis.
- Við leggjum áherslu á lífrænt ræktaðar vörur og heilsuvörur sem stuðla að bættri heilsu og vellíðan.
- Við kappkostum að leysa allar þarfir viðskiptavinanna frá degi til dags.
- Allar verslanir okkar vinna skv. HACCP-gæðakerfinu og hafa virkt innra eftirlit.
|