|
Frakkar lifa til að borða góðan mat en samt eru þeir grennri en aðrir Evrópubúar. Undirstaða í matargerð Frakka er nýtt og ferskt hráefni ásamt miklu grænmeti en sósur eru sjaldan notaðar. Þar sem maturinn er svo góður dettur engum Frakka í hug neitt nart milli mála því slíkt skemmir bara matarlystina. Og hver máltíð er eins og helg stund hjá Frökkum, þeir sitja lengi að borðum og njóta matarins til fullnustu. Verslanir Nóatúns bjóða upp á vörur hvaðanæva úr heiminum og því er það leikur einn að bregða undir sig betri fætinum í eldhúsinu og snara fram gómsætum sælkeraréttum undir framandi áhrifum. Það skiptir ekki máli hvort eldað er á franska eða egypska vísu, hráefnið finnur þú í næstu Nóatúnsverslun. Þér er boðið í ferðalag, ekkert venjulegt ferðalag, heldur flakk heimshorna í milli til að kynnast hinum fjölbreyttu matarhefðum heimsins. Heimsins eldhús hefur að geyma ótæmandi fróðleik um hvað það er sem einkennir matargerð fjarlægra landa, hverra áhrifa gætir í matargerð þeirra, hvaða hráefni eru helst notuð auk þess sem uppskriftir fylgja hverju og einu landi eða landsvæðum. Góða ferð og verði þér að góðu!
|