Forsíða
Matarmikil fiskisúpa




Matarmikil fiskisúpa
Leiðbeiningar:
Skerið græmetið í teninga eða saxið meðalgróft og sneiðið hvítlaukinn. Hitið ólífuolíuna í góðum potti og léttsteikið grænmetið hvítlauk ásamt karríinu, en passið að það brúnist ekki. Setjið kræklinginn út í og því næst hvítvínið og hitið að suðu. Um leið og suðan er komin upp bætið þá við tómötunum, heitu soðinu, rjómanum og öllu kryddinu. Sjóðið í um 5 mínútur. Smakkið til með salti og pipar eftir smekk. Setjið allan fiskinn í og takið af hita. Látið standa í 5–10 mínútur, sáldrið ferskri steinseljunni yfir og berið fram með heitu nýbökuðu brauði.

Hráefni:

500 g kræklingur í skel
200 g humar í skel
100 g hörpuskelfiskur
100 g rækjur
400 g fiskur að eigin vali, grófskorinn í bita
(t.d. steinbítur, skötuselur,
lúða, lax)
3 laukar
4 stilkar sellerí
3–4 gulrætur
½ hvítlaukur
1 dl ólífuolía
1 dós tómatar, niðursoðnir
4 dl hvítvín
1 l gott fiskisoð
2 tsk paprika
4 tsk karrí
1 búnt steinselja, söxuð
½ l rjómi