Forsíða
Hnetusteik með tómatsósu

Hnetusteik með tómatsósu
Leiðbeiningar:
Smyrjið eldfast form sem er 14x21 cm og klæðið með bökunarpappír. Saxið lauk og sveppi og steikið saman á pönnu ásamt hvítlauknum í nokkrar mínútur, laukurinn á ekki að brúnast. Kælið. Setjið hneturnar í matvinnsluvél og maukið en ekki of mikið. Blandið saman sveppablöndunni og hnetunum, cheddarosti, parmesan, eggi, graslauk og heilhveiti í skál og hrærið vel saman. Kryddið með salti og pipar, setjið í formið og bakið við 180 °C í 45 mínútur. Takið þá út og látið standa í 5 mínútur áður en borið er fram.

Tómatsósa
Saxið laukinn og steikið á pönnu við meðalhita, ásamt hvítlauk, í 3–5 mínútur, hrærið í á meðan. Bætið í tómötum og tómatpúrru, sykri og 80 ml af vatni og látið sjóða í 5 mínútur. Kryddið með salti og pipar. Berið fram ferskan graslauk með steikinni.
Ath. Hægt er að nota aðrar tegundir af hnetum, eins og pekan, möndlur, heslihnetur eða furuhnetur. Nokkrar tegundir af fræjum, t.d. sesam-, sólblóma- og graskersfræ, má líka nota í staðinn fyrir hneturnar í uppskriftinni.

Hráefni:

1 stór laukur
300 g sveppir
2 msk jómfrúarolía
2 hvítlauksgeirar, saxaðir
200 g kasjúhnetur
200 g brasilíuhnetur
125 g rifinn cheddarostur
25 g parmesanostur
1 egg, slegið
2 msk graslaukur
80 g heilhveiti
sjávarsalt og nýmalaður pipar

Tómatsósa
1 laukur
1½ msk jómfrúarolía
1 hvítlauksgeiri, saxaður
400 g niðursoðnir tómatar, saxaðir
1 msk tómatpúrra
1 tsk sykur