Leiðbeiningar:
Leggið þurrkuðu sveppina í 500 ml af soðnu vatni og látið standa í 30 mínútur. Sigtið og haldið vökvanum heitum, saxið sveppina, sigtið vökvann aftur í gegnum viskustykki og haldið heitu. Hitið jómfrúarolíuna í víðum potti og steikið lauk og hvítlauk þar til hann verður mjúkur, bætið grjónunum út í og blandið vel saman, Bætið fersku sveppunum og múskati í, kryddið með salti og pipar og hrærið vel. Bætið porchinisveppunum og soðinu af sveppunum út í, hækkið hitann og sjóðið þar til soðið er gufað upp. Bætið þá kjúklingasoðinu út í, 2 dl í einu og setjið lok á. Sjóðið en passið þó að vera alltaf að hræra og þegar soðið er gufað upp bætið þá við 2 dl í viðbót og sjóðið þar til grjónin eru tilbúin. Það gæti þurft meira soð og líka minna. Bætið parmesanostinum út í og steinseljunni og berið fram.
Hráefni:
25 g þurrkaðir porchinisveppir 1 l grænmetis- eða kjúklingasoð 2 msk jómfrúarolía 1 msk smjör 1 laukur, saxaður 2 hvítlauksgeirar, saxaðir 375 g rísottogrjón 250 g sveppir, sneiddir örlítið múskat 50 g rifinn parmesanostur 3 msk söxuð steinselja salt og pipar
|