Forsíða
Lambagrillleggir bakaðir

Lambagrillleggir bakaðir
Leiðbeiningar:
Brúnið leggina á heitri pönnu og setjið yfir í eldfast mót. Afhýðið laukinn og skerið í fjóra bita og setjið í eldfasta mótið. Afhýðið gulræturnar og rófuna og skerið gróft og setjið í mótið.
Afhýðið hvítlaukinn og merjið rifin, ekki mauka þau, og dreifið í mótið ásamt timjan og rósmaríni. Kryddið með salti og pipar og hellið hvítvíninu yfir og dreypið smáskvettu af jómfrúarolíu yfir í lokin.
Setjið inn í 180 °C heitan ofn og og bakið í lokuðu forminu í eina klst. Takið þá lokið af og bakið áfram í 20 mínútur. Notið safann úr forminu til að baka upp sósu.

Hráefni:

6 lambagrillleggir
12 meðalstórar kartöflur
2 laukar
1 rófa
4 meðalstórar gulrætur
1 hvítlaukur
2 greinar rósmarín
2–3 greinar timjan
sjávarsalt og nýmalaður pipar
700 ml hvítvín
jómfrúarolía