Leiðbeiningar:
Hitið ofninn í 230 °C. Setjið rósmarín, serranoskinku og hvítlauk í mat-vinnsluvél og maukið. Kryddið með svolitlu af salti og miklum pipar. Stingið litlar raufar í lærið og troðið maukinu í, reynið að láta það standa sem minnst út úr lærinu og notið allt maukið. Leggið lærið í eldfast mót, skerið laukinn í 4 hluta og setjið í mótið. Hellið jómfrúarolíunni yfir lærið og bakið í ofninum í 15 mínútur. Takið kjötið úr ofninum og lækkið hitann í 180 °C. Hellið 250 ml af hvítvíninu yfir og bakið áfram í eina klst. Ausið oft yfir lærið. Bætið vatni út í ef þurfa þykir. Takið lærið úr ofninum og látið það standa á bretti og jafna sig í 10 mínútur. Setjið allan safa úr mótinu í pott. Bætið restinni af hvítvíninu út í og sjóðið þar til þetta er orðin hæfilega þykk sósa. Smakkið til og bragðbætið með salti og pipar ef þurfa þykir.
Hráefni:
1 meðalstórt lambalæri án lykilbeins 2 greinar af rósmarín 3 hvítlauksgeirar 75 g serranoskinka 1 stór laukur 125 ml jómfrúarolía 375 ml hvítvín salt og pipar
|