Leiðbeiningar:
Skerið nokkra 1 cm djúpa skurði í lærið og stingið hvítlaukssneið ofan í. Nuddið lærið fyrst með jómrúarolíunni, síðan með rósmaríni og timjan og loks með salti og pipar. Leggið á ofngrind og í kæli í 4 klst. Takið lærið úr kælinum 2 klst. áður en það fer í ofninn. Setjið í 180 °C heitan ofn og bakið í 30 mínútur. Raðið þá eggaldinsneiðum í kringum lærið og bakið áfram í 30 mínútur. Takið lærið úr ofninum og látið standa í 10 mínútur. Hellið vökvanum af kjötinu í pott og sjóðið. Kryddið með kjötkrafti ef þarf. Berið fram með sósu og eggaldinsneiðunum.
Hráefni:
1 lambalæri 6 stórir hvítlauksgeirar, skornir í sneiðar 2 msk jómfrúarolía 1 dl saxað rósmarín ²⁄³ dl saxað timjan 2 tsk sjávarsalt 1 tsk nýmalaður pipar 2 eggaldin, skorin í 1 cm þykkar sneiðar lambakraftur
|