Forsíða
Lambalundir með kókos-, karrí-, sveppasósu

Lambalundir með kókos-, karrí-, sveppasósu
Leiðbeiningar:
Brúnið lundirnar í olíu á pönnu við mikinn hita. Kryddið með salti og pipar, takið af pönnunni og leggið til hliðar. Bræðið smjörið á pönnunni og steikið sveppina og hvítlaukinn í nokkrar mínútur með salti og pipar. Bætið þá karrí, papriku og tómötum saman við og hrærið saman í eina mínútu. Hellið kókosmjólkinni út í og sjóðið í 10 mínútur eða þar til sósan fer að þykkna. Setjið kjötið út í og sjóðið í 3–5 mínútur eftir stærð. Stráið basilíkunni yfir og berið fram.

Hráefni:

800 g lambalundir
25 g smjör
400 g ferskir sveppir, jafnvel villtir, skornir gróft
2 hvítlauksgeirar, saxaðir
1 dós kókosmjólk
4 tómatar, skornir í fernt
1 tsk karrí
1 tsk paprikuduft
10 fersk basilíkublöð
jómfrúarolía
sjávarsalt og nýmalaður pipar