Leiðbeiningar:
Kryddið kjötið mjög vel með salti og pipar. Brúnið það vel á öllum hliðum og setjið í ofn við 120 °C þar til það hefur náð 59 °C í kjarna. Takið kjötið þá út og látið standa í 10 mínútur áður en það er skorið. Svepparagú Skolið sveppina vel og þerrið. Setjið 2 msk af smjörinu á pönnu og steikið sveppina í 5 mínútur á miklum hita, hrærið oft í. Bætið lauknum og restinni af smjörinu á pönnuna og steikið áfram í 2 mínútur. Kryddið með salti og pipar. Hellið hvítvíninu á pönnuna og skafið upp kraftinn í botninum á pönnunni með tréspaða. Bætið rjómanum út í, hitið upp að suðu og berið fram.
Hráefni:
1 kg nautalund 2 msk jómfrúarolía sjávarsalt og nýmalaður pipar
Svepparagú 500 g blandaðir sveppir (td.shiitake-, kastaníu-, Flúða-) skornir gróft 4 msk ósaltað smjör 1 stór skalottlaukur, saxaður ½ tsk sjávarsalt nýmalaður svartur pipar 3 greinar ferskt timjan, tekið af greinum 120 ml hvítvín 80 ml rjómi
|