Leiðbeiningar:
Sósan Steikið grænmeti með lárviðarlaufi, pipar og timjan í 25 g af smjöri, hellið líkjörnum út í og berið eld að. Þegar eldurinn kviknar hellið þá nautasoðinu út í, sjóðið niður um helming og sigtið. Hrærið restinni af smjörinu út í sósuna en hún má ekki sjóða eftir það. Skerið fersku sveppina í sneiðar eða leggið þá þurrkuðu í volgt vatn í 10 mínútur.
Brúnið kjötið í olíunni við mikinn hita í um eina mínútu á hvorri hlið og kryddið með salti og pipar. Bætið þá sveppunum út á, lækkið hitann og klárið að elda kjötið sem gæti tekið 4–5 mínútur. Leggið eina sneið á disk og sveppi ofan á, svo aðra kjötsneið og hellið að lokum sósu yfir allt.
Hráefni:
8 x 90 g nautalundarsteikur 150 g ferskir kóngasveppir eða 25 g þurrkaðir 150 g ferskir kantarellusveppir eða 25 g þurrkaðir 50 ml jómfrúarolía sjávarsalt og nýmalaður pipar
Sósan 150 ml Drambuie eða Iris Mist líkjör 150 ml nautasoð 50 g smjör 75 g Brunoise (gulrót, sellerí, laukur smátt saxað) 1 lárviðarlauf 1 grein ferskt timjan ½ tsk svartur pipar
|