Leiðbeiningar:
Stingið út kringlóttar sneiðar úr maltbrauðinu með útstungujárni. Ekki er nauðsynlegt að notast við útstungujárn, allt eins er hægt að nota glas til að stinga út brauðið og móta tartarinn í höndunum á borði. Hakkið eða saxið hráefnið í laxablöndunni og blandið saman, saltið og piprið eftir smekk. Skiptið laxablöndunni í 4 hluta og mótið kringlótt „buff“ jafnstór og brauðsneiðarnar. Setjið laxabuffin ofan á brauðið, skiljið eggin í sundur og berið eggjarauðuna fram með í hálfri skurninni í eggjabikar. Skreytið með steinseljukvistum.
Hráefni:
4 eggjarauður 4 sneiðar maltbrauð Laxablanda 400 g lax, roð- og beinlaus 1 lítill rauðlaukur 2 sýrðar smágúrkur 6 grænar ólífur (spánskar) 2 msk kapers 2 sólþurrkaðir tómatar 2 msk jómfrúarolía salt og svartur pipar úr kvörn
|