Forsíða
Sjávarréttasúpa kampavínsbætt með saffrani

Sjávarréttasúpa kampavínsbætt með saffrani
Leiðbeiningar:
Afhýðið lauk og hvítlauk, saxið og setjið í stóran pott ásamt ólífuolíu. Mýkið laukinn og bætið kampavíni og saffrani út í. Sjóðið niður um helming. Bætið niðursoðnum tómötum út í pottinn ásamt vatni. Setjið kjúklinga- og fiskikraft, krydd, sinnep, appelsínumarmelaði og sjávarréttaost saman við. Sjóðið í um 10 mínútur og bragðbætið með salti og pipar eftir smekk.
Skerið fiskinn í hæfilega stóra bita og setjið út í pottinn, fyrst lax og skötusel, þá skelfiskinn. Látið suðuna koma upp. Bætið að lokum um 2 msk. af ólífuolíu saman við súpuna, skömmu áður en hún
er borin fram.

Hráefni:

100 g lax
100 g skötuselur
200 g kræklingur
200 g humarhalar
2 laukar
4 hvítlauksgeirar
½ flaska þurrt kampavín
12 þræðir saffran
1 dós niðursoðnir tómatar (Stewed tomatoes)
1 lítri vatn
1 askja sjávarréttaostur, 250 g
2 tsk karrí
1 msk kjúklingakraftur
1 msk fiskikraftur
2 tsk Dijon sinnep
2½ msk appelsínumarmelaði
ólífuolía
sjávarsalt og pipar