Forsíða
Humar með chili og appelsínu á rótarmauki




Humar með chili og appelsínu á rótarmauki
Leiðbeiningar:
Saxið afhýtt rótargrænmetið smátt og setjið yfir til suðu í mjólkinni og rjómanum. Látið sjóða við vægan hita ásamt piparkornunum þar til grænmetið er mauksoðið. Fjarlægið piparkornin og maukið grænmetið þar til það er slétt og kekkjalaust. Kryddið með salti og pipar og bætið smjörinu út í.
Hitið pönnu með smjöri og olíu. Þegar þetta er næstum farið að brenna er humar, hvítlaukur og chili sett út í og steikt í 2–3 mínútur. Þá er appelsínusafa og steinselju bætt í og kryddað með salti og pipar. Setjið rótarmaukið á disk og raðið humrinum ofan á og hellið að lokum appelsínusmjörinu yfir.

Hráefni:

16–20 humarhalar, skelflettir
50 g smjör
4 msk olía
3 hvítlauksgeirar, saxaðir
1 rauður chilipipar, saxaður
safi úr einni appelsínu
1 msk steinselja, söxuð
salt og pipar

Rótarmauk
150 g afhýdd sellerírót
50 g afhýdd steinseljurót
1½ dl mjólk
1½ dl rjómi
4 svört heil piparkorn
20 g smjör
salt