Leiðbeiningar:
Saxið Toblerone súkkulaði og bræðið yfir heitu vatnsbaði. Þeytið saman egg og flórsykur og hrærið saman við súkkulaðið. Kælið lítillega og blandið súkkulaðimassa og þeyttum rjóma varlega saman. Setjið í skálar og kælið í ísskáp í 2–3 klst. Skreytið að vild, t.d. með bláberjum og rifsberjum.
Hráefni:
300 g Toblerone súkkulaði 2 egg 2 tsk flórsykur 4 dl rjómi, léttþeyttur
|