Forsíða
Panna cotta

Panna cotta
Leiðbeiningar:
Leggið matarlímið í kalt vatn. Skerið vanillustöngina eftir endilöngu og skafið fræin úr.
Setjið allt nema matarlímið í pott. Þegar byrjar að hitna bætið þá matarlíminu út í og hitið upp í um 80 °C, notið töfrasprota til að mauka og hellið næst öllu í form og kælið.
Til að ná búðingnum úr forminu er best að láta það standa í heitu vatni í örskamma stund, hvolfa því á disk og þrýsta svo með fingurgómunum á botninn.
Berið búðinginn fram með ávöxtum.

Hráefni:

3½ bl matarlím
200 ml rjómi
100 g sykur
170 g sýrður rjómi
150 g mascarponeostur
1 stk vanillustöng
1 msk sítrónusafi